Viðgerðir á götulýsingu í miðborginni
Þessa dagana er unnið að viðgerðum götulýsingar í miðborginni, en eftir óveðrið fyrir tveimur vikum jukust bilanir á því svæði til muna. Um síðustu helgi voru um 170 stólpar ljóslausir, sem og pollar á Austurvelli og við Arnarhól. Einnig datt öll lýsing á Ingólfstorgi út. Lampar fuku af nokkrum stólpanna eða löskuðust svo illa að skipta þarf um þá.
Starfsmenn Orkuveitunnar vinna að viðgerðum í samráði við umsjónarmenn götulýsingar hjá Reykjavíkurborg og lýkur verkinu í þessari viku. Síðast var farið yfir götulýsingu í ágúst og september og þá var gert við allt sem laga þurfti.