Viðbygging og útisundlaug við Sundhöll Reykjavíkur

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Í dag voru kynntar niðurstöður dómnefndar í hönnunarsamkeppni um viðbyggingu og útisundlaug ásamt pottum og vatnsleiksvæði fyrir börn við Sundhöll Reykjavíkur.  

Verðlaunatillagan er frá VA Arkitektum, en Heba Hertervig, Karl Magnús Karlsson og Ólafur Óskar Axelsson eru skrifuð fyrir henni. Dómnefndin mat tillögu þeirra heilsteypta og aðlaðandi. „Aðlögun að Sundhöllinni er einstaklega vel heppnuð þar sem gagnsæ viðbygging myndar skemmtilegt mótvægi við þyngra yfirbragð Sundhallarinnar.“
 
Dómnefndin telur ferlimál einstaklega vel leyst með notkun á lyftum á bæði blaut- og þurrsvæðum. Þá er dregið fram að gagnsæi frá Barónsstíg inn í sundlaugargarð sé góð hugmynd því þannig njóti suðurhlið Sundhallarinnar sín til fullnustu þrátt fyrir viðbyggingu.  „Útisvæði og allt fyrirkomulag umhverfis laugarkers er mjög gott. Staðsetningu varðturns er haganlega fyrir komið. Ofanljós í búningsklefum er góð lausn á birtugjöf til neðri hæðar. Staðsetning afgreiðslu og veitingasölu er góð en mætti hugsanlega stækka á kostnað starfsmannarýma“, segir einnig í dómnefndaráliti um verðlaunatillöguna. 
 

Útisundlaug og bætt aðgengi

Markmið Reykjavíkurborgar með samkeppninni var að fá fram vandaðar tillögur að viðbótum við Sundhöll Reykjavíkur, þar sem sérstök áhersla er lögð á að byggingarlist hússins innan sem utan verði gert hátt undir höfði og að fullt tillit verði tekið til hennar við hönnun á viðbyggingu og við endurbætur Sundhallarinnar.   Í keppnislýsingu er dregið fram að aðalhlutverk laugarinnar sé að þjóna sem almennings- og kennslulaug. 
 
Verðlaunatillagan gerir ráð fyrir 25 metra langri útisundlaug, nýjum pottum, vaðlaug fyrir börn, nýju eimbaði og annarri aðstöðu sem þarf til að gera Sundhöllina að alhliða heilsurækt fyrir almenning. 
Miðað er við að byggja nýja búningsklefa kvenna og stækka búningsklefa karla, en gert er ráð fyrir að gömlu búningsklefarnir verði notaðir áfram, enda eru þeir friðaðir. Einnig er gert ráð fyrir að gera þurfi lágmarksbreytingar á hinu friðaða innra byrði hússins til að tenging og samnýting eldri og fyrirhugaðrar viðbyggingar verði með sem bestu móti.
 

Að byggja við friðað hús

 
Sundhöllin er byggð á árunum 1929 – 1937, hönnuð af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins. Hún er í fúnkisstíl með nýklassískum áhrifum.  Í dómnefndarálitinu er bent á að samkeppnin marki að vissu leyti tímamót í íslenskri byggingarlistasögu þar sem í fyrsta skipti er boðað til hönnunarsamkeppni um viðbyggingu og breytingar á friðlýstu húsi. „Það er grundvallaratriði að varðveisluverð hús hafi hlutverk og því er það misskilningur þegar því er haldið fram að engu megi breyta í friðlýstum húsum. Það er því mikilvægt að þau geti tekið breytingum, þó án þess að gildi þess sé rýrt með nokkrum hætti“, segir í álitinu. 
 

Sýning á tillögum

Allar tillögur sem dómnefndin tók til umfjöllunar eru til sýnis í Borgartúni 14 næstu tvær vikurnar.   
Fyrstu verðlaun fengu VA arkitektar eins og áður segir. Önnur verðlaun komu í hlut samstarfshóps þriggja arkitekta en í honum eru Agnes Nilsson, Andrea Tryggvadóttir, og Guðný Arna Eggertsdóttir.  Þriðju verðlaun fékk samstarfs tveggja arkitektastofa Kurt og pí og T.ark, en í þeim hópi eru arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson, Steinþór Kári Kárason, Anja Schröter, Ásgeir Ásgeirsson, Hlín Finnsdóttir og Michael Blikdal Ericsen. 
Verðlaunafé var 6,5 milljónir og einnig ákvað dómnefndin að kaupa eina tillögu til viðbótar. 
 
Dómnefnd var skipuð fulltrúum Reykjavíkurborgar og Arkitektafélags Íslands:
Nikulás Úlfar Másson, skrifstofustjóri, USK, formaður dómnefndar
Sólveig Valgeirsdóttir, forstöðumaður, ÍTR
Guðrún Arna Gylfadóttir, forstöðumaður, ÍTR
Guðmundur Kr. Guðmundsson, arkitekt FAÍ, tilnefndur af AÍ
Birgir Teitsson, arkitekt FAÍ, tilnefndur af AÍ