Sumri fagnað með hverfahátíðum

Mannlíf Menning og listir

""

Sumardeginum fyrsta verður fagnað með margvíslegri skemmtun fyrir börn og fullorðna í hverfum borgarinnar, s.s. skrúðgöngum og hljóðfæraleik. 

Sumarhátíðir verða í öllum borgarhverfum á sumardaginn fyrsta og verður m.a. boðið upp á skemmtidagskrá við frístundamiðstöðvar og í sundlaugum. Hátíðarnar eru samstarfsverkefni frístundamiðstöðvanna, þjónustumiðstöðva og frjálsra félagasamtaka í hverfunum. Dagskrá hverfahátíða. 

Dagskrá sumarhátíða í einstökum hverfum. 

Árbær

Kl. 09.00-11.00 Frítt í Árbæjarlaug
Kl. 09.30 Sund-zumba í boði Árbæjarþreks
Kl. 11.00 Skrúðganga frá Árbæjarlaug að Árbæjarkirkju
Kl. 11.30 Fjölskylduhelgistund í Árbæjarkirkju í tilefni af sumarkomu
Kl. 12.00-14.00 Sumarhátíð á Árbæjartorgi
Kl. 13.00-15.00 Skátar úti og inni að Hraunbæ 123
 
 

Breiðholt

Kl. 13.00 - 15.00 Hátíðarhöld við félagsmiðstöðina Hólmasel - Hoppukastalar, andlitsmálning, grillaðar pylsur og kandýfloss, kynning á starfi ÍR og Skátafélagsins Seguls.
Kl. 13.30 Sigurvegarar frá Breiðholt got talent: Stefán Halldór, Leví, Asian Style, Gabríela Ósk, Mannlegur píramídi og Vorvindar glaðir frá Bakkaseli
Kl. 13.50 Dans Brynju Péturs
Kl. 14.00 Páll Valdimar JóJó listamaður
Kl. 14.15 Jón Víðis töframaður
Breiðholtslaug verður opin frá kl. 9.00 - 18.00. Wipeout-braut og fjör!
 
www.midberg.is

Bústaðahverfi

Kl. 12.00 Grillað í Grímsbæ með Víkingum og 10-11
Kl. 13.00 Gengið úr Grímsbæ í Bústaðakirkju undir taktföstum tónum Skólahljómsveitar Austurbæjar
Kl. 13.20 Dagskrá í Bústaðakirkju
  • Kórar Bústaðakirkju
  • Nokkur orð frá Sverri Hjaltested
  • Framsagnarhópur úr Hæðargarði
Kl. 14.00 - 16.00 Gengið í Víkina
  • Hoppukastalar
  • Sumargrín
  • Andlitsmálun
  • Söngatriði frá:
    - Neðstalandi
    - Breiðagerðisskóla
    - Fossvogsskóla
    - Réttarholtsskóla
  • Skátar með hnútakennslu og grill
  • Víkingshlaupið
  • Kökur og kaffi
  • Myndasýning frá leikskólunum

Meira um dagskrána í Bústaðahverfi. 

Grafarholt

Kl. 12.30 Skrúðganga frá Sæmundarskóla að Guðríðarkirkju
Kl. 13.00 Helgistund í Guðríðarkirkju
Kl. 13.30 - 15.30 Sumarhátíð við Ingunnarskóla
 

Grafarvogur

Kl. 11.30 Skrúðganga frá Spöng að Rimaskóla. Skólahljómsveit Grafarvogs leikur og félagar í Skátafélaginu Hamri bera fána
Kl. 11.45 - 14.00 Skemmtun í Rimaskóla
  • Nemendur í Tónlistarskólanum í Grafarvogi og Tónskóla Hörpunnar leika
  • Danssýning barna í Dansskóla Reykjavíkur
  • Sirkus Íslands
  • Skemmtiatriði frá félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum Gufunesbæjar
  • Kynning á sumarstarfi Gufunesbæjar, Fjölnis, Útilífsskóla skátanna o.fl.
  • - Leiktæki
  • - Veitingasala
  • - Andlitsmálun

 

Háaleiti

Kl. 11.00 - 13.00 Sumarhátíð í Kringlumýri, Safamýri 28
  • Legó-keppni
  • Andlitsmálun
  • Skylmingarkennsla
  • Perluskálagerð
  • Litahorn
  • Grillaðar pylsur og ávaxtasafi
  • Snú-snú, sipp og krítar

Laugardalur

Kl. 11.00 - 13.00 Sumarhátíð í Þróttheimum/Glaðheimum við Holtaveg 11
  • Grillaðar pylsur og ávaxtasafi
  • Andlitsmálning
  • Stórfótbolti
  • Spilavinir koma í heimsókn og kenna á nokkur spil

Miðborg og Hlíðar

Kl. 13.00 - 15.00 Sumarhátíð á Klambratúni við Kjarvalstaði
  • Hoppukastalar
  • Slökkviliðsbílinn til skoðunar
  • Eldri borgarar leika á harmóníku
  • Nemendur í Dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna listir sínar
  • Veitingar í tjöldum á vegum skátafélagsins Landnema
  • Íþróttafélagið Valur býður upp á boltaþrautir

 

Vesturbær

Kl. 09.00 - 10.00 Bjartsýnisbusl í Vesturbæjarlaug í boði Neskirkju og Vesturbæjarlaugar
Kl. 10.00 Hólavallagarður – Heimir garðyrkjumaður leiðir göngu um kirkjugarðinn
Kl. 11.00 Skrúðganga frá Melaskóla að Frostaskjóli - Lúðrasveit Reykjavíkur og Ægisbúar leiða gönguna
Kl. 11.15 - 12.30 Fjölskylduhátíð við Frostaskjól
Kl. 11.15 Hildur Sverrisdóttir, formaður hverfisráðs Vesturbæjar
Kl. 11.20 Sigurvegari Rófunnar söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar Frosta, Ástrós Sigurjónsdóttir tekur lagið ásamt Ragnhildi Helgadóttur
Kl. 11.40 Trúðurinn Wally
Kl. 12.00 Ágúst Beinteinn Árnason, sigurvegari Vesturbær Got Talent.
Kl. 12.10 Ungmennahúsið Jökla; Tindur Sigurðarson, Ingvar Sigurðsson og Karen Lilja Loftsdóttir syngja og leika.
  • Hoppukastalar
  • Þrautabraut KR
  • Veitingasala
  • Kandýfloss
  • Kassaklifur