Sumargötur ganga í garð í Reykjavík

Umhverfi Mannlíf

""
Tími göngugatna hefst í miðborginni 1. maí næstkomandi en þeim er ætlað að auðga mannlíf og bæta aðgengi gangandi og hjólandi fólks að mannlífi, verslun og þjónustu. En samkvæmt áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016 verður völdum götum breytt í sumargötur um helgina.

Göngugötur 1. maí til 1. október 2016

Pósthússtræti við Kirkjustræti verður göngugata frá 1.maí til 1.október. Gatan verður opin fyrir akstur milli kl. 07:00 og 11:00 frá mánudegi til föstudags. Hafnarstræti verður göngugata að austanverðu frá Pósthússtræti en umferð heimiluð í Hafnarstræti frá Tryggvagötu.

Laugavegurinn, frá Vatnsstíg að gatnamótum Bankastrætis og Þingholtstrætis, og Skólavörðustígur frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Bankastræti, verður göngugata frá 1.maí til 1.október.

Auk þessa verður neðsti hluti Bergstaðastrætis einnig gerður að göngugötu. Það er gert vegna þess að Smiðjustígur, sem er í beinu framhaldi af Bergstaðastræti, er lokaður vegna framkvæmda og því ekki hægt að komast þá leið niður á Hverfisgötu. Hliði verður bætt við á horni Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs sem verður lokað þegar þörf krefur.

Bekkjum, blómakerum og fleiri hlutum verður komið fyrir á götunum til að skreyta þær og skapa ákjósanlegar aðstæður fyrir fólk á svæðunum. Laugavegur verður málaður í fallegum litum og unnið verður að ýmsum sumarverkefnum á göngugötusvæðum.  Bifreiðastöður í sumargötum verða óheimilar eins og venja er.

Sumargötur njóta vinsælda     

Sumargötur í miðborginni á vegum Reykjavíkurborgar hafa mælst vel fyrir undanfarin ár en í 74% svarenda voru jákvæðir en aðeins 13% neikvæðir þegar spurt var í netkönnun sem framkvæmd var af Gallup fyrir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar í fyrra.
 
„Til þess að sumargöturnar heppnist sem best er gott samstarf rekstraraðila og borgarinnar mikilvægt. Lífleg miðborg með auknum fjölda gesta er mikið gleðiefni en því fylgir aukið álag á hreinsun og viðhald,“ segir Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri borgarhönnunar hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.