Styrkur til að rannsaka matarsóun í Reykjavík

Umhverfi

""

Reykjavíkurborg veitir Landvernd styrk til að rannsaka matarsóun á reykvískum heimilum.

Reykjavíkurborg mun veita Landvernd tveggja milljóna króna styrk til að vinna forrannsókn á matarsóun á reykvískum heimilum, taka saman hugmyndir að aðgerðum og setja upp vefsíðu til að miðla upplýsingum um matarsóun og varnir gegn henni á Íslandi.

„Reykjavíkurborg fékk Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2014 og vill styðja þetta verkefni Landverndar. Matarsóun er stórt umhverfisvandamál sem við viljum taka á en það hefur einnig efnahags- og félagslega hlið,“ segir Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar sem skrifaði undir ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni framkvæmdastjóra Landverndar.

Forrannsóknin tekur til valinna þátta og mun fara fram á 15 - 20 reykvískum heimilum. Spurningalisti verður lagður fram og viðtöl tekin við alla þátttakendur til að kanna viðhorf til matarsóunar og ástæður fyrir henni. Þá munu þátttakendur halda matardagbók í eina viku þar sem þeir mæla matarsóun sína. Fjárhagslegt tjón matarsóunar verður metið út frá þessu.

Afurðin felst vonandi í gagngóðum niðurstöður um umfang matarsóunar frá reykvískum heimilum. Niðurstaða hugmyndavinnu og ákvörðun um gerð aðgerðaáætlunar gegn matarsóun mun liggja fyrir í júní 2015.

Ríkur vilji í Reykjavík til að flokka

Í spurningakönnun sem Capacent Gallup (2014) vann fyrir Reykjavíkurborg og SORPU bs. í mars á þessu ári kom fram að um 75% íbúa höfuðborgarsvæðisins flokka sjaldan eða aldrei lífrænan eldhúsúrgang, þ.e. matarleifar. Jafnframt kom fram að um 65% myndu flokka meira ef eldhúsúrgangur væri sóttur á heimili þeirra. Könnunin sýndi því ríkan vilja íbúa höfuðborgarsvæðisins til að flokka lífrænan úrgang frá öðrum úrgangi, en flokkun kynni einmitt að vera fyrsta skrefið til að öðlast yfirsýn á umfang matvæla sem hent er.

Engar haldgóðar mælingar eru til á matarsóun hérlendis. Brýnt er að bæta úr því svo hægt sé að vinna markvissara starf og sýna betur fram á árangur aðgerða gegn matarsóun. Á þessu ári hóf Landvernd, í samvinnu við Vakanda og Kvenfélagasamband Íslands, verkefnið Zero Waste, sem nýtur stuðnings Norrænu ráðherranefndarinnar. Fyrstu skref vitundarvakningu um matarsóun hérlendis hafa verið stigin.

Mörg dæmi eru um frábæran árangur í baráttu gegn matarsóun í nágrannalöndum okkar, m.a. hjá Stop spild af mad í Danmörku  og Matvett í Noregi. Reykjavíkurborg vill leggja sitt af mörkum til að vinna þessa grunnvinnu og hefur því styrkt þetta verkefni Landverndar.