Rekstur A-hluta jákvæður um 490 milljónir

Stjórnsýsla Fjármál

""
Jákvæðar tölur í sex mánaða uppgjöri Reykjavíkurborgar sem kynnt var á fundi borgarráðs í morgun. 
Hagræðingarvinna og hærri skatttekjur skiluðu borginni jákvæðri niðurstöðu á A-hluta upp á 490 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Í heildina var áformað að ná fram 604 mkr hagræðingu borgarsjóðs á fyrri hluta ársins en aðgerðir skiluðu um 611 mkr hagræðingu. Innan A-hluta er hinn almenni rekstur borgarinnar sem fjármagnaður er af skatttekjum.
 
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 490 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 300 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því 790 mkr. betri en gert var ráð fyrir. Betri rekstrarniðurstaða skýrist að stærstum hluta af hærri skatttekjum, sem voru 554 mkr hærri en áætlun gerði ráð fyrir og hagræðingarvinnu á fagsviðum borgarinnar sem skiluðu 611 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 844 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 281 mkr eða 563 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir.
 
„Það er ánægjulegt að sjá að sú hagræðingarvinna sem við lögðum í er að skila sér. Þá er líka gott að sjá að tekjur Reykvíkinga eru að aukast því það sýna hærri skatttekjur borgarinnar. Hins vegar verðum við að halda þétt um taumana því það má lítið út af bera í rekstrinum,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. „Jafnframt er halli á fjárhagslegum samskiptum okkar við ríkið því miður áfram staðreynd og mikilvægt að fá bætt þar úr.“

Rekstur samstæðunnar jákvæður um 10,6 milljarða

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 10.561 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 5.300 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 5.261 mkr betri en gert var ráð fyrir.
 
Helstu ástæður fyrir þessu má rekja annars vegar til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og hins vegar lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna hagstæðrar gengisþróunar og  lægri verðbólgu en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 9.504 mkr sem er 622 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Eigið fé hækkar 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabils  530.751 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 298.599 mkr og eigið fé var 232.152 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 12.897mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 43,7% en var 42,9% um síðustu áramót.
 
Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar¬svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.