Nýtt hverfi á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog fyrir 12.600 manns

Fjármál Framkvæmdir

""

Gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðahúsnæðis og innviða fyrir allt að 12.600 manns þegar hverfi við Elliðaárvog og á Ártúnshöfða verður að fullu endurgert. Fjöldi íbúða gæti orðið á bilinu 5.100 - 5.600. 

Kynningarfundur um skipulag og uppbyggingu Elliðaárvogs og Ártúnshöfða verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 22. febrúar kl. 17.00–18.30 ,   í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Allir eru velkomnir.

Vistvænt borgarhverfi með fólk í fyrirrúmi

Björn Guðbrandsson hjá Arkís segir að uppbygging Elliðaárvogs-Ártúnshöfða búi yfir fjölmörgum eiginleikum vistvænnar byggðar, enda hafi áherslur í hönnun verið að skapa vistvænt borgarhverfi með fólk í fyrirrúmi.  Rammaskipulag fyrir svæðið var unnið í samstarfi Arkís, Landslags og Verkís.

„Að stærstum hluta er um að ræða land sem þegar hefur verið raskað; athafnasvæði sem gengur í gegnum endurnýjun og umbreytist í blandaða byggð,“ segir Björn, en hann er meðal þeirra sem segja frá hverfinu á kynningarfundinum á morgun.  Hann segir að lögð hafi verið áhersla á að skapa hverfi sem er þétt og fjölbreytt, bjóði upp á þjónustu og atvinnumöguleika innan hverfis og er tengt hágæða almenningssamgöngukerfi.  Uppbyggingin mun tengjast nýrri borgarlínu á samgönguás frá vestri til austurs. 

Björn segir að hverfið njóti einstakra umhverfisgæða og tenginga við útivistarstíga.  Ennfremur gerir skipulagið ráð fyrir fjölbreyttum borgarrýmum og útivistarsvæðum sem eru tengd neti göngu- og hjólastíga.

Nánar: