Nýjar ylstrendur við Gufunes og Skarfaklett kannaðar

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Tillaga borgarstjóra um að stofnaður verði starfshópur til að kanna möguleikann á að nýta heitt umframvatn til að búa til nýjar ylstrandir við Gufunes og Skarfaklett var samþykkt í borgarráði í morgun.

Lagt er til að stofnaður verði starfshópur til að fullkanna og útfæra möguleika á að nýta umframvatn frá virkjunum eða borholum Orkuveitu Reykjavíkur til að skapa nýjar ylstrandir annars vegar við Gufunes og hins vegar við Skarfaklett.

Fulltrúar ÍTR, skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar, umhverfis- og skipulagssviðs og Orkuveitu Reykjavíkur munu skipa hópinn.  Lagt er til að fulltrúi ÍTR verði formaður en ÍTR rekur ylströndina í Nauthólsvík.

Hitaveitan í Reykjavík nýtir vatn frá lághitasvæðum annars vegar og frá virkjunum í Henglinum hins vegar. Ekki má blanda lághitavatni og virkjanavatni saman vegna útfellinga sem þá verða. Lághitasvæðin eru í góðu vinnslujafnvægi og má telja þau fullnýtt.  Öðru máli gegnir með virkjanavatnið og þá sérstaklega vatn frá Nesjavöllum en svo háttar til að stöðin þar framleiðir mun meira af heitu vatni á sumrin en þörf er á fyrir.   Umframvatni er því fargað á sumrin. Í minnisblaði frá Veitum segir að það væri Orkuveitunni ánægjuefni ef skemmtileg nýting fyndist fyrir þetta vatn.

Hægt væri að leiða vatnið í Gufnes frá Víkurvegsstöð í Grafarvogi.  Þá er starfshópnum einnig falið að kanna hvort hægt sé að nýta umframvatn fyrir ylströnd við Skarfaklett  út af Laugarnesi. Heita vatnið til hennar myndi koma úr svokallaðri Sundlaugastöð.
Í framtíðinni er gert ráð fyrir að allt umframvatn frá Grensásstöð og Sundlaugastöð verði losað til sjávar í frárennslispípu úr Sundlaugastöð. Þær framkvæmdir hafa ekki verið tímasettar en lauslegt mat er að þörf myndist á næstu 10 árum. Kanna þarf  hvort tenging í sjó fram gæti legið að Skarfakletti og hvort flýta megi framkvæmdinni.

Ylstrandir á þessum nýju stöðum hefðu án efa jákvæð áhrif á lýðheilsu, mannlíf og ferðamennsku.