Norðlingaskóli fær minningarverðlaun Arthurs Morthens

Skóli og frístund

""

Minningarverðlaun Arthurs Morthens voru afhent í annað sinn á Öskudagsráðstefnu grunnskólakennara í dag og komu í hlut Norðlingaskóla.

Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a. að Norðlingaskóli bjóði alla nemendur velkomna og fagni fjölbreytileikanum. Starfið einkennist af samvinnu, vellíðan, gleði, öguðu frjálsræði, lýðræði, notalegum vinnuaðstæðum, fjölbreytni og sveigjanleika. Lögð sé áhersla á mikla samvinnu starfsfólks, faglega umræðu og nýbreytni og allir starfsmenni beri ábyrgð á að framfylgja stefnu Norðlingaskóla í skóla fjölbreytileikans. Kennarar starfi saman í umsjónarteymum þar sem jafnframt starfi sérkennarar sem vinni með teyminu að skipulagi náms og kennslu fyrir alla nemendur svo tryggt sé að allir séu fullgildir þátttakendur í námshópnum.

Fimm grunnskólar voru tilnefndir til verðlaunanna; Brúarskóli, Hólabrekkuskóli, Laugarnesskóli, Rimaskóli og Norðlingaskóli.

Dómnefnd var skipuð  fulltrúum frá foreldrasamtökum, Kennarafélagi Reykjavíkur, Félagi íslenskra sérkennara og skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Það var foreldrafélag Norðlingaskóla sem tilnefndi skólann til Minningarverðlauna Arthurs Morthens.

Minningarverðlaunin voru sett á laggir árið 2016 til að minnast Arthurs Morthens sem vann um áratuga skeið sem sérfræðingur á sviði sérkennslu í grunnskólum Reykjavíkur og var brautryðjandi við að innleiða stefnu um skóla án aðgreiningar. Verðlaunin eru í formi viðurkenningarskjals og málverks eftir listamanninn Tolla, bróður Arthurs Morthens. 

Meira um Minningarverðlaun Arthurs Morthens