Lagðir verða 43 kílómetrar af malbiki næsta sumar og hljóðar kostnaðaráætlun fyrir malbiksframkvæmdir á þessu ári upp á tæpa tvo milljarða króna. Aldrei hefur verið malbikað jafn mikið í borginni á einu ári.
Borgarráð heimilaði umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út malbikunarframkvæmdir 2018 á fundi sínum í morgun.
Um er að ræða bæði malbikun yfirlaga sem og endurnýjun með fræsingu og malbikun. Lagt er til að 43 kílómetrar af götum borgarinnar verði malbikaðir sem er algjört met í malbikun á einu ári. Það eru um 10% af heildarlengd gatnakerfisins í Reykjavík. Kostnaðaráætlun fyrir malbikun yfirlaga er 1.740 mkr en að auki verður unnið við malbiksviðgerðir og er kostnaður við þær áætlaður 237 mkr.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir framkvæmdirnar í ár vera hluti af átaki í malbikun sem var sett af stað árið 2016. „Árið 2017 var metár í malbikun en árið 2018 verður ennþá stærra. Við erum við að fara að malbika yfir 10% af gatnakerfinu í heild í öllum hverfum borgarinnar sem ég er mjög ánægður með. Í fyrra fórum við í 30 km og í ár í 43 km þannig að þetta átak er einstakt í sögu borgarinnar að þessu leiti. Þau verkefni sem Vegagerðin fer í bætast svo við þessar tölur en Vegagerðin er þátttakandi í malbiksátakinu.“
Framkvæmdir ársins 2018 eru í samræmi við áætlun um endurnýjun á malbiki á götum Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára. Samkvæmt fjárhagsáætlun 2018-2022 er gert ráð fyrir rúmum sex milljörðum króna til endurnýjunar á malbiksyfirlögum auk hefðbundinna malbiksviðgerða.
Áhersla verður lögð á umferðarmiklar götur með hátt þjónustustig. Að auki verður endurnýjað malbik á götum þar sem framkvæmdir við endurnýjun gatna fara fram einkum í miðborginni.
Götur og götukaflar sem eru í forgangi 2018 eru:
- Aflagrandi,
- Arnarbakki,
- Austurgerði,
- Álfabakki,
- Álfaborgir,
- Álfheimar,
- Álftahólar,
- Álftamýri,
- Árkvörn,
- Ármúli,
- Ásasel,
- Ásendi,
- Ásgarður,
- Bakkastaðir,
- Bakkastígur,
- Baldursgata,
- Bankastræti,
- Básbryggja,
- Básendi,
- Birtingakvísl,
- Bitruháls,
- Bíldshöfði,
- Bjargarstígur,
- Bláskógar,
- Bleikjukvísl,
- Blikahólar,
- Borgargerði,
- Borgartún,
- Borgavegur/Gullengi,
- Bókhlöðustígur,
- Bólstaðarhlíð,
- Bragagata,
- Breiðhöfði,
- Brekkugerði,
- Brekkulækur,
- Bræðraborgarstígur,
- Bústaðavegur,
- Bæjarbraut,
- Bæjarháls,
- Drekavogur,
- Dúfnahólar,
- Dverghamrar,
- Efstaleiti,
- Engjateigur,
- Esjugrund,
- Eskihlíð,
- Eskitorg,
- Fannafold,
- Faxafen,
- Fellsmúli,
- Fjarðarás,
- Fjörutún,
- Flúðasel,
- Flyðrugrandi,
- Fornistekkur,
- Fossvogsvegur,
- Frakkastígur,
- Fríkirkjuvegur,
- Frostafold,
- Funafold,
- Furumelur,
- Gaukshólar,
- Gerðhamrar,
- Grensásvegur,
- Grundarhús,
- Grænlandsleið,
- Guðrúnargata,
- Gullengi,
- Haðarstígur,
- Hagamelur,
- Hamrastekkur,
- Hamravík,
- Háahlíð,
- Háaleitisbraut,
- Heiðargerði,
- Heiðarsel,
- Helgugrund,
- Hesthúsavegur,
- Hlemmur,
- Holtavegur,
- Hólaberg,
- Hólavallagata,
- Hraunbær,
- Hvammsgerði,
- Hvassaleiti,
- Hverfisgata,
- Höfðabakki,
- Jöklasel,
- Jökulgrunn,
- Jörfabakki,
- Jörfagrund,
- Kambsvegur,
- Kapellutorg,
- Kaplaskjólsvegur,
- Katrínartún,
- Kleppsvegur,
- Klukkurimi,
- Klyfjasel,
- Kringlan,
- Kvisthagi,
- Langagerði,
- Langholtsvegur,
- Langirimi,
- Laufásvegur,
- Laugavegur,
- Laxakvísl,
- Lágmúli,
- Leiðhamrar,
- Listabraut,
- Litlagerði,
- Litlahlíð,
- Lokinhamrar,
- Lækjargata,
- Malarsel,
- Melbær,
- Miðhús,
- Miklabr/Kringlan N-Rampi,
- Miklabr/Kringlan Sa-Rampi,
- Nauthólsvegur,
- Neðstaleiti,
- Njarðargata,
- Njálsgata,
- Norðurás,
- Norðurfell,
- Nóatún,
- Núpabakki,
- Nönnufell,
- Rafstöðvarvegur,
- Rauðagerði,
- Rauðarárstígur,
- Reykjanesbr/Breiðholtsbr.,
- Reykjavegur,
- Réttarsel,
- Rofabær,
- Rósarimi,
- Salthamrar,
- Sauðás,
- Seiðakvísl,
- Seljabraut,
- Selmúli,
- Sigluvogur,
- Síðusel,
- Skálholtsstígur,
- Skeiðarvogur,
- Skeifan,
- Skildingatangi,
- Skipholt,
- Skothúsvegur,
- Skógargerði,
- Skógarsel,
- Skriðusel,
- Sléttuvegur,
- Smárarimi,
- Smyrilshólar,
- Smyrilsvegur,
- Snorrabraut,
- Sogavegur,
- Sólheimar,
- Sóltorg,
- Sólvallagata,
- Spítalastígur,
- Stekkjarbakki,
- Stigahlíð,
- Stjörnugróf,
- Stokkasel,
- Strandvegur,
- Straumur,
- Stuðlasel,
- Suðurgata,
- Suðurlandsbraut,
- Sundlaugavegur,
- Súðarvogur,
- Súluhólar,
- Sæmundargata,
- Tryggvagata,
- Tungusel,
- Tunguvegur,
- Túngata,
- Ugluhólar,
- Urriðakvísl,
- Vagnhöfði,
- Vallarás,
- Vallarhús,
- Vallengi,
- Valshólar,
- Varmahlíð,
- Vatnsmýrarvegur,
- Vatnsveituvegur,
- Veðurstofuvegur,
- Veghús,
- Vegmúli,
- Veiðimannavegur,
- Vesturás,
- Vesturberg,
- Vesturberg,
- Vesturfold,
- Vesturlandsv./Grjótháls,
- Vesturlandsv./Víkurvegur,
- Viðarás,
- Viðarhöfði,
- Viðarrimi,
- Viðarrimi,
- Víðihlíð,
- Víðimelur,
- Víkurbakki,
- Víkurvegur,
- Vínlandsleið,
- Vonarstræti,
- Völundarhús,
- Þingás,
- Þorragata,
- Þrándarsel,
- Þúfusel,
- Þverársel,
- Þverás.
Listinn getur breyst eftir því hvernig göturnar koma undan vetri og eftir ástandsskoðun næsta vor.