Hvers vegna að stytta vinnuvikuna ?

Atvinnumál Mannlíf

""

Reykjavíkurborg og BSRB standa fyrir málþingi miðvikudaginn 7. febrúar í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem fjallað verður um niðurstöður tilraunaverkefnis um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar. Dagskráin hefst klukkan 9.00 og lýkur klukkan 12.00.

Málþinginu verður streymt inn í þessa frétt.

Tilraunaverkefnið um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar hófst í mars 2015 og náði þá til starfsmanna barnaverndar Reykjavíkur og skrifstofu þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts. Verkefnið gaf góða raun og haustið 2016 bættust nýjar starfsstöðvar við verkefnið en það voru Leikskólinn Hof, Laugardalslaug, heimaþjónusta og heimahjúkrun í efribyggð og allar hverfis- og verkbækistöðvar borgarinnar.

Síðastliðið haust var ákveðið að fara í annan áfanga tilraunaverkefnisins sem fólst meðal annars í því að gefa öllum starfsstöðum borgarinnar kost á að sækja um að taka þátt í verkefninu að undangengnu samtali yfirmanna og almennra starfsmanna á hverjum stað.  Annar áfangi hefst mánudaginn 12. febrúar nk. og af því tilefni standa Reykjavíkurborg og BSRB fyrir málþingi um tilraunaverkefnið þar sem fjallað verður um afrakstur verkefnisins til þessa, starfsmenn segja frá reynslu sinni og næstu skref í verkefninu verða kynnt. 

Dagskrá málþingsins:

8:30-9:00 Létt morgunhressing

9:00-9:10 Opnunarávarp

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri

9:10-9:25  Kynning á niðurstöðum verkefnisins og könnun um upplifun starfsmanna sem tóku þátt í tilrauninni

Magnús Már Guðmundsson, formaður stýrihóps um tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar

9:25-9:35 Sveitarfélögin og stytting vinnuvikunnar

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

9:35-9:50 Viðhorf og upplifun stjórnenda sem tóku þátt í tilrauninni

Eygló Rós Gísladóttir, MSc í mannauðsstjórnun

9:50-10:15 Sálfélagsleg vinnuvernd, vinnutími, streita

Ólafur Þór Ævarsson, Dr. Med., geðlæknir hjá Forvörnum ehf.

10:15-10:30 Kaffi

10:30-10:40 Reynslusaga starfsmanns

Ester Halldórsdóttir, teymisstjóri í félagslegri heimaþjónustu hjá þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts

10:40-11:00 Um nauðsyn þess að forgangsraða hagsmunum barna

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og höfundur bókarinnar Árin sem enginn man

11:00-11:10 Reynslusaga starfsmanna

Gróa Sigurðardóttir, leikskólakennari, og Erna Georgsdóttir, félags- og tómstundafræðingur, á leikskólanum Hofi

11:10-11:30 Jafnréttisáhrif styttingar vinnuvikunnar

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB

11:30-12:00 Umræður

Fundarstjóri: Ragnhildur Ísaksdóttir, starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar

Allir velkomnir.

Sjá viðburð á Facebook