Hugmyndum rignir inn í Hverfið mitt

Betri hverfi Framkvæmdir

""

Hugmyndasöfnun vegna nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í Reykjavík gengur vel og hafa nú þegar um 500 hugmyndir skilað sér á vefsvæðið hverfidmitt.is, en það er hluti af vefnum Betri Reykjavík.  Hugmyndasöfnun líkur eftir viku, föstudaginn 24. mars.

Allar hugmyndir birtast strax öllum notendum um leið og þær hafa verið settar inn á Hverfið mitt. Notendur geta látið velþóknun sína í ljós með því að smella hjarta á þá hugmynd sem þeim líkar.  Hjartað er like-merki Betri Reykjavíkur.

Hver og einn getur sett inn eins margar hugmyndir og í öllum hverfum ef hann vill.  Gott er að hafa sérhverja hugmynd afmarkaða og nauðsynlegt er að ákveða staðsetningu fyrir hverja hugmynd.  Þá hjálpar að setja góðan titil og greinargóða lýsingu á hugmyndinni, ásamt mynd að eigin vali. Sá sem setur inn hugmynd getur að auki bætt inn rökum með eða á móti.

Eftir að hugmynd hefur verið send inn á vefinn hverfidmitt.is er æskilegt að draga athygli að henni með því að deila henni með fylgdarliði sínu á samfélagsmiðlum. Þeir sem sjá geta þá látið vita hvort hjarta þeirra slái með hugmyndinni. Til að hugmynd komist áfram á næsta stig í úrvinnslu verður hún að hafa fengið 10 hjörtu að lágmarki.

Íbúasamtök slá upp hugmyndakaffihúsi

Íbúasamtök Ártúnsholts, Árbæjar og Seláss, sem og íbúasamtök Norðlingaholts bjóða til hugmyndakaffihúss í samstarfi við hverfisráð Árbæjar. Hugmyndakaffihúsið verður í Fylkisheimilinu mánudaginn 20. mars og opnar kl. 20.00.  Gefin verða góð ráð um hvernig best sé að setja inn hugmyndir.

Hverfið mitt á Breiðholtsþingi

Breiðholtsþing verður haldið miðvikudaginn 22. mars í Menningarhúsinu Gerðubergi og hefst það kl. 19.30.  Aðferðafræði skapandi samráðs verður notuð á fundinum og stórt líkan sem sem nemendur í 6. bekkjum allra grunnskóla í Breiðholti byggðu síðasta vetur verða sett upp.  Verkefnisstjórar fyrir Hverfið mitt gefa góð ráð og aðstoða við innsetningu hugmynda.

Flakkað um framhaldsskólana

Til að ná betur til ungs fólks verða framhaldsskólarnir heimsóttir. SnapChat-hópurinn Áttan tók áskorun um að koma með bestu hugmyndina og má sjá hana bæði inn á Hverfidmitt.is sem og á þeirra rás á snappinu.

Tengt efni: