Hjólastígar fyrir hálfan milljarð

Stjórnsýsla Umhverfi

""

Í ár verða lagðir hjólastígar í Reykjavík fyrir um hálfan milljarð króna. Sérstök áætlun um þessar aðgerðir var samþykkt í borgarráði í gær og tekur hún bæði til nýrra hjólastíga sem endurbóta á eldri stígum út frá öryggissjónarmiðum og bættu aðgengi.

Betri og öruggari stofnstígar

Fyrst er að telja stofnstíga sem unnið er að í samvinnu við Vegagerðina. Þar eru bæði nýir stígar og endurbætur á eldri stígum þar sem áhersla er lögð á að skilja að gangandi umferð og hjólandi.

  • Nýr hjólastígur kemur í Öskjuhlíð frá Flugvallarvegi að HR samhliða göngustíg sem verður lagfærður á nokkrum köflum. Einnig kemur ný þverun yfir Flugvallaveg ásamt breikkun miðeyju og hraðahindrun.
  • Meðfram Kringlumýrarbraut kemur nýr hjólastígur á tveimur stöðum. Annars vegar  frá syðri enda Suðurhlíðar upp fyrir Sléttuveg og hins vegar á kaflanum frá Laugavegi að Sóltúni.
  • Á hinni fjölförnu leið meðfram Sæbraut frá Faxagötu að Kringlumýrarbraut kemur nýr hjólastígur og gangandi fá eldri stíginn allan fyrir sig.
  • Þá verður hjólasstígur við Sævarhöfða endurbættur að Gullinbrú.

Kostnaður við ofangreind verkefni er áætlaður um 275 milljónir króna og þar sem þeir eru hluti af stofnstígakerfinu skiptist kostnaður til helminga milli Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar.

Hjólastígar samhliða endurnýjun gönguleiða

Einnig er gert ráð fyrir að gera nýja hjólastíga á nokkrum stöðum samhliða endurnýjun gönguleiða.

  • Háleitisbraut milli Bústaðavegar og Brekkugerðis,
  • Stjörnugróf milli Bústaðavegar og Traðarlands,
  • og meðfram syðsta hluta Suðurgötu frá Starhaga og inn Einarsnes að Bauganesi.

Kostnaðaráætlun ofangreindra verka er 85 milljónir króna.
Þá verður áfram unnið við hjólaleiðir í Borgartúni, en gatan tók miklum breytingum í fyrra. Áætlun 2014 gerir ráð fyrir 80 milljónum króna til hjólastíga í Borgartúni.

Hjólastígar í Elliðaárdal undirbúnir

Á fundi borgarráðs í gær var einnig heimilað að hefja undirbúning og hönnun vegna göngu- og hjólastíga í Elliðaárdal, auk brúar yfir Elliðaár við Rafstöð. Í fjárhagsáætlun 2014 er gert ráð fyrir 50 milljónum króna til þessa verkefnis.

 

Í kynningu sem sýnd var í borgarráði í gær má sjá yfirlitsmyndir af hjólaleiðunum sem koma til framkvæmda í ár.