Gróska, hugmyndahús í Vatnsmýri

Atvinnumál Framkvæmdir

""

Gróska, nýtt hugmyndahús í Vatnsmýri sem ætlað er að verða suðupottur nýsköpunar  og samstarfs háskóla og atvinnulífs, rís á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands á næstu misserum. Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri CCP á Íslandi, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, tóku fyrstu skóflustunguna að nýbyggingunni í dag að viðstöddu fjölmenni.

Þegar hefur verið ákveðið að alþjóðlegi leikjaframleiðandinn CCP flytji skrifstofur sínar frá Grandagarði í nýbygginguna, sem verður að Bjargargötu 1 (áður Sturlugata 6), við hliðina á húsi Íslenskrar erfðagreiningar. Það er í samræmi við samkomulag sem fyrirtækið gerði við Vísindagarða Háskóla Íslands sumarið 2015. Með flutningunum skapast aukin tækifæri til samstarfs milli CCP og háskólasamfélagsins á sviði tækniþróunar, rannsókna og nýsköpunar.

Nýbyggingin verður alls 17.500 fermetrar að stærð á fjórum hæðum auk bílakjallara og er gert ráð fyrir að fleiri öflug fyrirtæki af ýmsum stærðum geti leigt rými þar og þróað áfram hugmyndir sínar. Á jarðhæð verður ýmiss konar þjónusta, verslanir og kaffihús auk ráðstefnusalar í hjarta byggingarinnar,  2. hæð skiptist í allmörg smærri rými, CCP verður á allri 3. hæð hússins og loks er gert ráð fyrir stórum rýmum á efstu hæð. Hönnun byggingarinnar miðast að því að auðvelt verði fyrir þá sem þar starfa að tala saman, tengjast og deila hugmyndum. Andrúm arkitektar og dkpitt arkitektar hönnuðu bygginguna. Lögð verður áhersla á umferð fótgangandi og hjólandi við þetta umhverfisvæna frumkvöðlasetur í hjarta Vatnsmýrarinnar.
Framkvæmdir við nýbygginguna hefjast á næstu dögum og samkvæmt verkáætlun er reiknað með að húsið verði fullbúið í lok árs 2018.
Nánari upplýsingar um húsið má finna á heimasíðu þess. www.groska.is

„Það er bæði fagnaðarefni að jafnöflugt fyrirtæki og CCP flytjist í Vatnsmýrina en ekki síður að til viðbótar eigi að reisa stærsta nýsköpunarsetur landsins, með rými fyrir fjölda smárra og stórra sprotafyrirtæki.  Það er sérstakt fagnaðarefni fyrir borgina að efla þekkingarstarfsemi og það mun Gróska sannarlega gera. Með flutningi CCP í Vatnsmýrina er gamall draumur að rætast. Þetta framsækna fyrirtæki verður jafnframt kjölfesta fyrir alls kyns sprota og nýsköpunarfyrirtæki sem fá nú bestu aðstæður til að þroskast og dafna. Gróska og efling Vísindagarða bætir samkeppnishæfni borgarinnar. Það sem skapar gott háskólaumhverfi og gott umhverfi fyrir ungt fólk er oftar en ekki það sama og skapar góða, kraftmikla og lífandi borg," segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Vísindagarðar Háskóla Íslands

Vísindagarðar Háskóla Íslands er félag sem er að stærstum hluta í eigu háskólans. Markmið félagsins er að skapa framúrskarandi umhverfi á lóð skólans fyrir rannsóknartengda og þekkingardrifna nýsköpun. Fyrirmyndin er sótt til nágrannalanda í austri og vestri, en útfærslan tekur mið af aðstæðum á Íslandi. Í samvinnu við fyrirtæki og stjórnvöld er ætlunin að fjölga störfum í þekkingarstarfsemi til heilla og hagsældar fyrir samfélagið.

CCP

Tölvuleikjaframleiðandinn CCP var stofnaður í Reykjavík árið 1997 og er í dag með skrifstofur í Reykjavík, Shanghai, Atlanta, London og Newcstle. Fyrirtækið framleiðir m.a. og gefur út tölvuleikinn margverðlaunaða EVE Online, sýndarveruleikaleikina EVE: Valkyrie og Gunjack fyrir PC og PlayStation 4 og gaf nýlega út framhaldsleikinn Gunjack II fyrir Daydream sýndarveruleikabúnað Google. Alls starfa rúmlega 330 manns fyrir fyrirtækið á heimsvísu, þar af rúmlega  tvö hundruð manns á skrifstofu þess í Reykjavík.

Skoða ítarlegri frétt á vef Háskóla Íslands