Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, veitt í Höfða

Mannlíf Menning og listir

""

Verðlaunin eru nú veitt í níunda sinn og fór athöfnin fram í Höfða en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna og bauð hann gesti velkomna. Venju samkvæmt fengu verðlaunahafar keramik-egg eftir listakonuna Koggu en að þessu sinni steig frú Vigdís Finnbogadóttir á svið og afhenti verðlaunahöfum gjafabréf fyrir dvöl á Kolkuósi í Skagafirði.

Verðlaunin hlutu:

Í flokki fagurbókmennta: Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur.

Í flokki barna- og unglingabókmennta: Hafnfirðingabrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur.

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis: Ofbeldi á heimili – Með augum barna. Ritstjóri Guðrún Kristinsdóttir.
 

Rökstuðningur dómnefnda.

Frá dómnefnd í flokki fagurbókmennta

Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Útgefandi: Elísabet Jökulsdóttir.

Lífið er enginn dans á rósum í ljóðabók Elísabetar Kristínar Jökulsóttur, Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett. Ljóðin lýsa á óvenju opinskáan og einlægan hátt ástarsambandi ljóðmælanda við ofbeldismann og hvernig hún festist í þráhyggju og ástarfíkn.
Þetta er ljóðabálkur í þremur hlutum sem byrjar í tilhugalífinu og endar með skilnaði. Átakanleg en jafnframt fyndin saga sem afhjúpar veikleika beggja aðila í þessu sjúka ástarsambandi. Teikningar höfundar gefa verkinu kynferðislegan undirtón þar sem píkan er miðlæg uppspretta girndar og kvalar konunnar. Ljóðmælandi þráir ástina og er haldin ástarfíkn og fær stöðugt viðvörunarmerki um að maðurinn sem hún hefur ákveðið að fá með sína „sambúð hvað sem það kostaði“, sé ofbeldismaður. Hún ber kennsl á viðvörunarmerkin en hunsar þau og tapar sér í ástarfíkn. Ljóðmælandi skoðar ferlið úr fjarlægð með írónískum augum, hissa á þvi að hafa ekki losað sig úr þessum ástarfjötrum fyrr og spyr „kannski vissi ég ekki hvar dyrnar voru?“

Frá dómnefnd í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis

Ofbeldi á heimili – Með augum barna. Ritstjóri Guðrún Kristinsdóttir. Útgefandi: Háskólaútgáfan

Bókin Ofbeldi á heimili með augum barna, er yfirgripsmikil rannsókn á upplifun barna á heimilisofbeldi. Höfundar nálgast efnið frá mörgum sjónarhornum og sýna fræðilegan metnað með því að byggja rannsóknina á breiðum grunni megindlegrar og eigindlegrar aðferðafræði. Bókin samþættir niðurstöður víðtækrar könnunar á þekkingu barna á heimilisofbeldi, viðtöl við börn og mæður þeirra sem búið hafa við ofbeldi á heimilum, ásamt greiningu á orðræðu fjölmiðla um heimilisofbeldi.
Þetta er frumkvöðlarannsókn sem á sér fáar hliðstæður erlendis og er einstök í íslensku samfélagi, þar sem ofbeldi á heimilum hefur ekki áður verið rannsakað út frá sjónarhóli barna. Áhersla er lögð á börn sem áhrifavalda í eigin lífi, frekar en óvirka þolendur og upplifanir þeirra settar í brennidepil. Þannig er rofin sú þögn sem hefur ríkt um tilfinningar barna sem verða fórnarlömb ofbeldis á heimilum.

Frá dómnefnd í flokki barna- og unglingabókmennta

Hafnfirðingabrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur. Útgefandi: Vaka-Helgafell

Bókin er vel skrifuð og skemmtileg, söguþráður frumlegur og listilega fléttaður. Frásagnarstíllinn er ærslafullur og myndrænn og lestrarupplifunin á stundum eins og horft sé á kvikmynd. Frásögnin er margradda, grípandi og vekur sterka samlíðan með persónunum. Helsti styrkur sögunnar er hvernig hún fjallar samskipti kynslóða og dregur upp flóknar sögupersónur af eldri kynslóðinni, persónur sem eru margbrotið og áhugavert fólk. Heimur eldri borgara er gerður merkingarbær og spennandi fyrir ungt fólk og veitt er óvenjuleg innsýn í líf þeirra. Viðfangsefni sögunnar eru viðkvæm málefni eins og einelti, kvíðaröskun unglinga, ástin og ástarsorgin og er fjallað raunsæislega um þau án þess að bjóða einfaldar lausnir. Átakafletirnir eru ekki settir upp eins og vandamál sem þurfi að sigrast á, heldur sem áskoranir til að lifa með. Enginn stendur uppi sem sigurvegari. Sagan fjallar um það að taka ábyrgð á eigin lífi og sínum nánustu og horfast í augu við sjálfan sig. Dómnefnd telur að Hafnfirðingabrandarinn hafi alla burði til að verða sígild unglingabók.

Dómnefndir Fjöruverðlaunanna 2015 skipa:

Fagurbókmenntir:
Hildur Knútsdóttir, bókmenntafræðingur;
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, bókmenntafræðingur og rithöfundur;
Guðrún Birna Eiríksdóttir, bókmenntafræðingur og kennari.

Barna- og unglingabókmenntir:
Halla Sverrisdóttir, þýðandi;
Júlía Margrét Alexandersdóttir, íslenskufræðingur og blaðamaður;
Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir, myndskreytir og kvikari.

Fræðibækur og rit almenns eðlis:
Birna Lárusdóttir, fornleifafræðingur;
Erna Magnúsdóttir, líffræðingur;
Gréta Sörensen, kennari.