Stelpur rokka á Músíktilraunum 2013

Sunnudaginn 17.mars hefjast Músíktilraunir 2013. Þar stíga á stokk 10 fyrstu hljómsveitirnar í ár. 39 hljómsveitir af öllum stærðum og gerðum, einherjar, rokkarar, raftónlistarmenn, harðkjarnasveitir og blúsarar munu gleðja augu og eyru áhorfenda í ár.

Sérstök ánægja er með hversu stór hluti eru stelpur, eða 21 talsins. Fjölbreytileiki verður einkenni tilraunanna í ár og óhætt er að lofa frábærri skemmtun í grasrót íslensks tónlistarlífs.