Yfirferð hugmynda

Sendir þú inn hugmynd í Hverfið mitt og vilt vita hvað gerist næst? Þá ert þú á réttum stað. 

Hvað gerist núna?

Þegar hugmyndasöfnun lýkur er komið að yfirferð hugmynda. Þar er farið yfir allar innsendar hugmyndir og metið hvort þær falli að reglum verkefnisins og séu framkvæmanlegar.  

Eftir yfirferðina fer fram uppstilling kjörseðla þar sem 25 hugmyndir fara áfram í kosningu í hverfum Reykjavíkurborgar. Hugmyndir eru síðan frumhannaðar fyrir kosningar þar sem skrifuð er verkefnalýsing fyrir hugmyndina, fundin endanleg staðsetning og hugmynd kostnaðarmetin. 

Hvernig er farið yfir hugmyndirnar? 

Nefnd starfsfólks innan borgarinnar fer yfir allar hugmyndir sem sendar eru inn og metur hvort þær uppfylli reglur verkefnisins. Af þeim hugmyndum fara 15 vinsælustu hugmyndirnar í hverju hverfi sjálfkrafa áfram. Íbúaráð hverfisins velur svo 10 hugmyndir til viðbótar.  

Við mat á hugmyndum leitar starfsfólk verkefnisins allra leiða til þess að útfæra hugmyndir svo kjósa megi um þær í kosningunum. Hugmyndir sem eiga að framkvæmast á svæðum/lóðum sem hafa sérstök hlutverk eins og á íþrótta-, sundlaugar- og skólasvæðum þarf að skoða sérstaklega. Í sumum tilfellum er haft samband við hugmyndahöfunda til þess að skýra betur eða breyta hugmynd svo hún uppfylli reglur verkefnisins. Öllum hugmyndum verður svarað. 

Hvaða sérfræðinga er talað við?

Haft er samráð við fjölda sérfræðinga innan borgarkerfisins og utan til að meta hvort hugmyndir falli að reglum verkefnisins og séu framkvæmanlegar. Samráðslistinn er breytilegur frá ári til árs, en undanfarin ár höfum meðal annars talað við: 

  • Samgöngudeild 
  • Deild náttúru og garða 
  • Skipulagsfulltrúa 
  • Borgarsögusafn 
  • Borgarlögmann 
  • Bóka- og listasöfn 
  • Fagsvið borgarinnar (til dæmis skóla- og frístundasvið og íþrótta- og tómstundasvið) 
  • Samband íslenskra myndlistarmanna 

Hvaða skilyrði þarf hugmyndin að uppfylla? 

  • Vera nýframkvæmd – viðhalds- og öryggisverkefnum er vísað annað. 
  • Kosta ekki meira fjármagn en hverfinu er úthlutað. 
  • Krefjast ekki verulegs rekstrarkostnaðar á borð við kostnað vegna starfsmannahalds eða vöktunar með öryggismyndavélum. 
  • Vera framkvæmanlegar innan tímaramma verkefnisins - þ.e. fyrir árslok 2024. 
  • Falla að skipulagi og yfirlýstri stefnumótun Reykjavíkurborgar. 
  • Vera á verksviði borgarinnar 
  • Vera á opnu svæði í borgarlandinu. 
  • Vera í samræmi við lög og reglur. 

Rafræn hverfakosning

Þegar búið er að velja hugmyndir fer fram hverfakosning í öllum hverfum Reykjavíkur á Hverfidmitt.is. Öll sem eru 15 ára og eldri og eiga lögheimili í Reykjavík geta kosið.

 

Kosningin er rafræn og notendur þurfa að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. 

Framkvæmd verkefna 

Verkefnin sem fá flest atkvæði í hverfakosningunni verða hönnuð, boðin út og framkvæmd árið eftir. Upplýsingum um framgang þeirra verður miðlað á vef Reykjavíkurborgar (Framkvæmdasjá). Leitast verður við að hafa samráð við hugmyndasmiði og íbúaráð um framkvæmd verkefnisins, sérstaklega í þeim tilvikum þar sem breyta þarf hugmyndum. 

 

Þær hugmyndir sem ekki ná kosningu verður eftir atvikum komið í annan farveg hjá Reykjavíkurborg, t.d. sem ábendingum til viðkomandi sviða eða sem innleggi í skipulagsumræðu.