Vinasel

Frístundaheimili

Seljaskóli við Kleifarsel
109 Reykjavík

""

Um Vinasel

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Vinasel er frístundaheimili fyrir börn úr 1.-2. bekk í Seljaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Frístundaheimilið er starfrækt í sér húsi í Seljaskóla þar sem við höfum aðgang að félagsmiðstöð, íþróttasal, tölvuveri og bókasafni skólans.

Forstöðumaður er Magnús Loftsson s:695-5038

Aðstoðarforstöðumaður er Jolanta Maszkiewicz, s: 664-7686

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Vinaseli frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Vinasel er lokað í vetrarleyfi skólans.

Vinasel

Viltu vita meira um Vinasel?  Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi frístundaheimilisins.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Vinaseli má finna á heimasíðu Seljaskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​