Vinaheimar

Frístundaheimili

Ölduselsskóli við Öldusel
109 Reykjavík

""

Um Vinaheima

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Vinaheimar er frístundaheimili fyrir börn úr 1.-2. bekk í Ölduselsskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Frístundaheimilið er starfrækt innan veggja skólans og hefur aðgang að íþróttasal og kennslustofum skólans.

Forstöðumaður er Viktor Orri Þorsteinsson, s: 695-5036

Aðstoðarmaður forstöðumanns er Arnar Bragi Magnússon, s: 665-4866

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Vinaheimum frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Vinaheimar eru lokaðir í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Vinaheimum má finna á heimasíðu Ölduselsskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​