Um Vesturbæjarlaug

Vesturbæjarlaug var tekin í notkun árið 1961. Stærð byggingarinnar er 850 fermetrar. Á svæðinu er sundlaug, barnalaug, fimm heitir pottar, eimbað og gufubað auk nokkurra leiktækja. Árið 2014 var bætt við tvöföldum potti.

Arkitektar

Bárður Ísleifsson og Jes Einar Þorsteinsson.

Byggingarár

1961.

Saga byggingarinnar

Árið 1953 var skipað í tvær nefndir vegna byggingar Vesturbæjarlaugar. Önnur var bygginganefnd, skipuð af bæjarstjórn Reykjavíkur, hin var fjáröflunarnefnd tilnefnd af Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Fjáröflunarnefndin var með söfnun meðal Vesturbæinga en einnig söfnuðu stúlkur úr Kvennaskólanum fjármunum vegna byggingar sundlaugarinnar.

Í árslok 1953 höfðu safnast 150 þúsund krónur. Ekki var eingöngu ætlunin að byggja fyrir söfnunarfé. Fjármagn kom einnig frá Reykjavíkurbæ. Þetta framtak varð til þess að hafist var handa við bygginguna. Söfnunarféð var notað til kaupa á listaverki sem málað var á loft og veggi í afgreiðslusal og til kaupa á stóru fiskabúri sem sett var upp í anddyri laugarinnar og var gestum til augnayndis í fjöldamörg ár.

Nýjum tvöföldum potti með nuddstútum var bætt við árið 2104.

Stærð byggingar: 850 m2
Stærð lóðar: 1.633 m2

Aðallaug

Lengd: 25 m, breidd: 12,5 m Mesta dýpi: 3,80 m Minnsta dýpi: 0,90 m Hringrásartími: 6 á sólarhring
Flatarmál aðallaugar og barnalaugar: 430,5 m2 Rúmmál: 700 m3 Hitastig: 27-30°C Fjöldi brauta: 5

Barnalaug

Hitastig barnalaugar er 32°C. Hreinsibúnaður er sameiginlegur með aðallaug.

Heitir pottar

Kaldi pottur Hitastig: 8-12°C 3,7 m2 | 2,7 m3
Pottur 2 Hitastig: 38,6°C 1,5 m3
Litli nuddpottur Hitastig: 38,6°C 3 m2 | 1,5 m3
Pottur 4 Hitastig: 43,6C° 3,3 m2 | 6 m3
Stóri nuddpottur Hitastig: 39°C 59 m2 | 44 m3
Vaðlaug Hitastig: 37°C 33 m2 | 10 m3

Hreinsitæki eru sandsíur, 4 fyrir heita potta og er hringrásartími 48 sinnum á sólarhring. Sótthreinsimiðill er klór pH. Stjórnun CO². Heildarvatnsmagn í heitum pottum 14,2 m3.

Stóri nuddpottur og vaðlaug eru ekki með varmaskipti heldur eru þeir alvöru „thermal pools“ af gamla skólanum. Með 4 m3 jöfnunartankar við þá og öll nýjustu tölvur/tæki til að stýra hita og vatnsgæðum

Eimbað

Eimbað Sameiginlegt: 28 m2

Sauna

Sauna Sér fyrir karla og konur: 5 m2 hvort um sig

Saunaklefar eru ekki fyrir yngri en 18 ára.

Vatn í sturtum

Blandað hitaveituvatn og upphitað kalt vatn til að ná 43°C.

Vatn í laug

Allt vatn í sturtum og laugum og pottum er hitaveituvatn "thermal pool". Sýrustigi vatnsins er stýrt með notkun koldíoxíðs og er því með um 7,5 pH, sem gerir það mögulegt að takmarka notkun klórs.

Klórmagn ræðst af 17. gr reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.

Leiktæki

Lítil barnarennibraut og körfuboltaspjald.

Útkilefar

Útiklefar eru með fjórum sturtum og salerni.

Sérklefi

Sérklefi er í mannvirkinu.

Forstöðumenn frá upphafi

Höskuldur Goði Karlsson 1961-1965
Guðmundur Þórarinsson aðstoðarmaður
Erlingur Þ. Jóhannsson 1965-1981
Haukur Jónasson 1981-1994
Ólafur Gunnarsson 1994-2004
Jens Á. Jónsson 2004-2005
Guðrún Arna Gylfadóttir 2005-2011
Hafliði Halldórsson 2011-2017
Guðrún Arna Gylfadóttir 2017-2022
Anna Kristín Sigurðardóttir 2022-