Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn, stjórn

Stjórn Vestnorræna höfuðborgasjóðsins er skipuð borgarstjórum höfuðborganna þriggja Reykjavík, Tórshavn og Kommuneqarfik Sermersooq (Nuuk) ásamt tveimur kjörnum fulltrúum frá hverri borg. 

Almennt um skipan stjórnar

Hlutverk sjóðsins er að efla samstarf og skilning milli stjórnmálamanna og íbúa í Reykjavík, Tórshavn og Kommuneqarfik Sermersooq (Nuuk) með:

  • fjárveitingum til verkefna á sviði menningar, fræðslu og íþrótta
  • þemaumræðum um pólitísk málefni sem eru ofarlega á baugi í höfuðborgum á Vestur Norðurlöndum.

 Sjá nánar reglur um sjóðinn.

Skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn sjóðsins 2022-2026

Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon borgarfulltrúar sitja í stjórn sjóðsins til loka kjörtímabilsins 2026.

Fulltrúar í stjórn sjóðsins 

Kommuneqarfik Sermersooq (Nuuk)

  • Avaaraq Olsen, borgarstjóri
  • Justus Hansen, borgarfulltrúi
  • Lene Rosengreen Pedersen, borgarfulltrúi

Reykjavík

  • Einar Þorsteinsson, borgarstjóri
  • Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar
  • Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi

Tórshavn

  • Heðin Mortensen, borgarstjóri
  • Annfinn Brekkstein, borgarfulltrúi
  • Annika Olsen, borgarfulltrúi