Umsókn um starfsleyfi fyrir heildverslun

Upplýsingar um matvæli

Þegar sótt um starfsleyfi fyrir heildverslun með matvæli þarf að tilgreina í starfsleyfisumsókninni hvaða matvæli ætlunin er að dreifa og upprunaland /-lönd þeirra.  Dæmi:  Áfengi, drykkjarvörur aðrar en áfengi, kælivörur, frystivörur, þurrvörur, sælgæti, fæðubótarefni. 

Í umsókninni þarf að greina frá því hvernig matvælafyrirtækið mun tryggja að matvælin sem það hyggst dreifa hér á landi uppfylli matvælalögin og reglugerðirnar sem byggja á þeim.

 

Matvælaöryggiskerfi (innra eftirlit)

Öll matvælafyrirtæki þurfa að hafa matvælaöryggiskerfi (innra eftirlit) sem byggir á meginreglum hættugreiningar (HACCP) og er um að ræða starfsleyfisskilyrði.  Matvælaöryggiskerfið þarf að aðlaga að hverju fyrirtæki fyrir sig.

Upplýsingar um matvælaöryggiskerfi (innra eftirlit) má nálgast á vefsíðu Matvælastofnunar. 

Lager

Í starfsleyfisumsókninni þarf að tilgreina hvar lager fyrirtækisins verður staðsettur og veita upplýsingar um matvælaöryggiskerfi (innra eftirlit).  Hvað lagerinn varðar eru tveir kostir í stöðunni: 

Fyrirtækið sér sjálft um lagerhald og dreifingu 

Einungis má geyma matvæli í húsnæði sem samþykkt er til starfseminnar af byggingarfulltrúa (atvinnuhúsnæði).  Geymsla matvæla í heimahúsi er ekki leyfileg.  Húsnæðið þarf að uppfylla kröfur matvælalöggjafarinnar og vera auðvelt í þrifum, meindýrahelt, búið aflokaðri loftræstri ræstiaðstöðu með ræstilaug, snyrtingu og starfsmannaaðstöðu (fataskiptaaðstaða, snyrting og kaffistofa með kaffivaski).  Matvæli má ekki geyma á gólfi. 

Heilbrigðiseftirlitið mun gefa út starfsleyfi fyrir heildverslun með matvæli.  Starfsleyfið gildir í 12 ár og um kostnað fer skv. gildandi gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins sem nálgast má á vefsíðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.  Heilbrigðisfulltrúi skoðar starfsemi fyrirtækisins og tekur út matvælaöryggiskerfi þess áður en umsókn um starfsleyfi er samþykkt.  Þegar fyrirtækið hefur fengið starfsleyfi mun heilbrigðisfulltrúi koma í reglubundið eftirlit og er tíðnin ákvörðuð samkvæmt áhættumati.  Gjaldfært er fyrir allar ferðir heilbrigðisfulltrúa (s.s. varðandi úttekt og reglubundið eftirlit) skv. gildandi gjaldskrá hverju sinni.  Þurfi heilbrigðisfulltrúi að gera athugasemdir við vörur á markaði er gjaldfært fyrir þá vinnu skv. gildandi gjaldskrá.

Fyrirtækið gerir samning við aðila sem er með leyfi frá heilbrigðiseftirliti til að annast lagerhald og dreifingu 

Dæmi um aðila sem bjóða upp á þessa þjónustu eru vöruhótelin, Parlogis, DHL og Vöruhýsing Póstsins.  Verði þessi kostur fyrir valinu þarf afrit af samningi fyrirtækisins við hýsingaraðila að fylgja umsókn um starfsleyfi eða skrifleg staðfesting frá hýsingaraðila að hann annist þessa þjónustu fyrir fyrirtækið.  Heilbrigðiseftirlitið mun gefa út starfsleyfi fyrir heildverslun með matvæli án lagers. 

Starfsleyfið gildir í 12 ár og um kostnað fer skv. gildandi gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins sem nálgast má á vefsíðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.  Ekki er farið í reglubundið eftirlit í fyrirtækið heldur er hýsingaraðili skoðaður og fylgst með vörum á markaði.  Þurfi heilbrigðisfulltrúi að gera athugasemdir við vörur á markaði er gjaldfært fyrir þá vinnu skv. gildandi gjaldskrá.  Sjá nánari upplýsingar undir “Tengd skjöl”.

Fylgigögn með umsókn

Starfsleyfi fyrir heildverslun með matvæli án lagers

  • Afrit af undirrituðum samningi við hýsingaraðila um dreifingu matvæla eða skrifleg yfirlýsing hýsingaraðila að hann annist dreifingu matvæla fyrir umsækjanda um starfsleyfi. Hýsingaraðili þarf að hafa starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti til að dreifa matvælum.
     

  • Skriflegt verklag um innköllun matvæla. Vakin er athygli á leiðbeiningarsíðu Matvælastofnunar um innköllun matvæla, fóðurs og matvælasnertiefna, kafla 2.13 í Leiðbeiningum um góða starfshætti fyrir matvælafyrirtæki og kafla 10.6.2 í  Eftirlitshandbók Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
     

  • Skriflegt verklag um rekjanleika matvæla. Sjá nánar kafla 2.12 í Leiðbeiningum um góða starfshætti fyrir matvælafyrirtæki og kafla 10.6.1 í Eftirlitshandbók Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
     

  • Upplýsingar um á hvaða tungumálum matvælaupplýsingar á umbúðum matvæla eru og upplýsingar um fyrirkomulag endurmerkinga matvæla, ef við á. Matvæli þarf að endurmerkja ef matvælaupplýsingar eru ekki á ensku, íslensku, dönsku, norsku og/eða sænsku. Einnig þarf að endurmerkja matvæli ef þau eiga uppruna sinn utan Evrópska efnahagssvæðisins og framleiðandi hefur ekki merkt þau með kröfur evrópskrar matvælalöggjafar í huga. Umsækjandi um starfsleyfi þarf að tilgreina hver annast endurmerkingar matvæla og hvar þær verða gerðar og hvernig umsækjandi tryggir að matvælaupplýsingarnar uppfylli ákvæði matvælalaga og reglugerða sem settar eru með stoð í þeim.

Umsókn um starfsleyfi verður tekin til afgreiðslu þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Lög og reglur

Um matvæli gilda matvælalög nr. 93/1995, með síðari breytingum.   Samkvæmt lögunum er óheimilt að flytja til landsins eða markaðssetja matvæli, þ.m.t. fæðubótarefni, sem innihalda lyf samkvæmt skilgreiningu lyfjalaga.  Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr.

Um fæðubótarefni gildir reglugerð nr. 624/2004 um fæðubótarefni, með síðari breytingum, en í reglugerðinni eru ákvæði um sérstakar merkingar fyrir fæðubótaefni.  Fæðubótarefni eru matvæli og um þau gilda einnig almennar merkingarreglur matvæla.  Tilkynna þarf markaðssetningu fæðubótarefna til Matvælastofnunar skv. reglugerð um fæðubótarefni. 

Almennar merkingarreglur fyrir matvæli (þ.m.t. fæðubótaefni og áfengi) er að finna í reglugerð nr. 1294/2014 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda, með síðari breytingum.  Þessi reglugerð innleiðir hér á landi reglugerð Evrópusambandsins nr. 1169/2011 um sama efni.  Vakin er athygli á því að gild tungumál merkinga matvæla hér á landi eru Norðurlandamál önnur en finnska og enska.

Reglur um næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli er að finna í reglugerð nr. 406/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1924/2006 um næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli, með síðari breytingum.

Hér að ofan hafa verið tekin dæmi um reglugerðir sem þarf að kynna sér en hægt er að nálgast lög og reglugerðir um matvæli á matvælastofnun. Mikilvægt er að kynna sér bæði matvælalögin (nr. 93/1995) og reglugerðir sem byggja á þeim lögum áður en dreifing matvæla hefst.  Ábyrgð á að matvæli uppfylli ákvæði laganna og reglugerðanna sem byggja á lögunum liggur alltaf hjá matvælafyrirtækinu.