Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
Efstaleiti 1
103 Reykjavík

Um þjónustumiðstöðina
Þú getur pantað tíma í ráðgjöf og/eða fengið allar almennar upplýsingar um þjónustuna með því að hringja í þjónustumiðstöðina eða senda tölvupóst.
Þjónustumiðstöðvar eru í fimm hverfum borgarinnar og sinna þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, frístundaráðgjöf auk almennrar upplýsingagjafar um starfsemi Reykjavíkurborgar. Þær bera ábyrgð á framkvæmd forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar og þar fer fram faglegt samstarf með áherslu á samþætta þjónustu.
Skrifstofa þjónustumiðstöðvarinnar er í Efstaleiti 1 (útvarpshúsinu), en að auki rekur þjónustumiðstöðin fjölmargar starfsstöðvar í hverfum Laugardals og Háaleitis. Einkum er þar um að ræða sambýli og íbúðakjarna fyrir fatlað fólk, þjónustuíbúðir fyrir aldrað fólk og félagsmiðstöðvar. Í heild eru starfsstöðvar þjónustumiðstöðvarinnar nálægt 40 og starfsmenn rúmlega 600.
Vegna íbúasamsetningar hefur þjónustumiðstöðin fengið það hlutverk að þróa tvö þekkingarstöðvarverkefni sérstaklega. Undir kjörorðinu: „Samfélag fyrir alla“ er þar um að ræða þekkingarstöð um þjónustu við eldra fólk og þekkingarstöð um þjónustu við fatlað fólk.
Lögð er áhersla á nærþjónustu við íbúa með þverfaglegri teymisvinnu og heildrænni nálgun þannig að ólík þekking, nálgun og reynsla nýtist íbúum sem allra best í þeirri þjónustu sem veitt er.
Framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvarinnar er Kristinn J. Reimarsson og deildarstjórar eru:
- Ásta Kristín Benediktsdóttir, deild virkni og ráðgjafar.
- Alda Róbertsdóttir, deild barna og fjölskyldna.
- Ragna Lilja Garðarsdóttir, deild fullorðinna (heimaþjónusta og heimahjúkrun)
- Ragna Ragnardóttir, deild fullorðinna fatlaðra
- Sigrún Ingvarsdóttir, öldrunarþjónusta
- Unnur Halldórsdóttir, deild fjármála og reksturs.
Hverfi Laugardals, Háaleitis og Bústaða eru heilsueflandi hverfi. Ómetanlegan félagsauð er að finna í hverfunum og þessi félagsauður getur dregið úr andlegri vanlíðan og félagslegri einangrun.