Karlasmiðja
Markmiðið með Karlasmiðju er að veita körlum sem ekki hafa verið á vinnumarkaði um nokkurt skeið tækifæri til að bæta menntun sína og verða færari um að komast út á vinnumarkað að nýju og/eða í áframhaldandi nám.
Fyrirkomulag
Í hverjum hópi eru 10 - 15 karlar. Kennt er 4 - 5 sinnum í viku í 9 - 12 mánuði.
Námið er þríþætt þar sem það skiptist í að vera bóklegt, skapandi og sjálfstyrkjandi. Verkefnið er í stöðugri þróun.
Hvar fer kennslan fram?
Kennslan fer fram hjá Námsflokkum Reykjavíkur við Suðurlandsbraut 32, 2. hæð.
Fyrirspurnir og/eða ábendingar
Hægt er að leita nánari upplýsinga hjá Iðunni Antonsdóttur, forstöðumanni hjá Námsflokkum Reykjavíkur í gegnum netfangið idunn.antonsdottir@rvkskolar.is