Stjörnuland

Frístundaheimili

Ingunnarskóli við Kirkjustétt 2-4
113 Reykjavík

""

Um Stjörnuland

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið Stjörnuland er starfrækt fyrir börn í 1. – 4. bekk í Ingunnarskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Brúnni

Forstöðumaður er Katrín Einarsdóttir

 

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Stjörnulandi frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Stjörnuland er lokað í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Í Stjörnulandi eru haldnir barnaráðsfundir í hverjum mánuði og það er mismunandi eftir mánuðum hvaða börn sitja fundina svo öll börn hafa tækifæri á að vera í barnaráði. Á þeim fundum hafa börnin tök á að koma sínum skoðunum á framfæri um hvað þau vilja gera í starfinu og í lok fundar ákveðum við dag sem þau ráða síðdegishressingu og ávaxtaúrvali dagsins ásamt þema.

Í lok hvers mánaðar er afmælishátíð fyrir afmælisbörn þess mánaðar. Þá fá afmælisbörn mánaðarins afmælis borðbúnað, afmælisviðurkenningu ásamt afmælis medalíu um hálsinn með afmæliskveðju á. Svo er að sjálfsögðu boðið upp á afmælisköku eftir síðdegishressinguna.

Hagnýtar upplýsingar

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Stjörnulands má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Stjörnulandi má finna á heimasíðu Ingunnarskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​