Yfirkjörstjórn Reykjavíkur

Samkvæmt lögum um kosningar nr. 112/2021 kýs Alþingi fimm menn í yfirkjörstjórn og jafnmarga til vara í hverju kjördæmi eftir kosningar. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur, hverfiskjörstjórnir og undirkjörstjórnir í Reykjavík eru kosnar af borgarstjórn.

Áður en kosningar til borgarstjórnar eru haldnar kýs borgarstjórn þrjá menn í yfirkjörstjórn og jafnmarga til vara, ásamt hverfis- og undirkjörstjórnum, skv. lögum um kosningar nr. 112/2021.

Undanfarin ár hafa starfað 14-15 hverfiskjörstjórnir og u.þ.b. 90 undirkjörstjórnir við kosningar í Reykjavík.

Þann 19. júní 2018 kaus borgarstjórn þrjá fulltrúa í yfirkjörstjórn og þrjá til vara.