Hæðargarður 31

Félagsstarf

Hæðargarður 31
108 Reykjavík

""

Opnunartími

Félagsstarfið í Hæðargarði 31 er opið alla virka daga kl. 9:00–15:45

  • Hádegismatur kl. 11:30–12:30 alla virka daga (matarpöntun þarf að berast fyrir kl. 13 daginn áður)
  • Síðdegiskaffi kl. 14:30–15:30 alla virka daga

Þjónusta

  • Fótaaðgerðastofa Rósu - sími 699-1465.
  • Hársnyrtistofa Lovísu - sími 568 3139

Strætó

Strætisvagnar sem stoppa nálægt eru leiðir 2, 3, 5, 6, 11, 13, 14 og 18.

Um félagsstarfið

Starfræktar eru 17 félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina sem eru opnar Reykvíkingum á öllum aldri. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins. Hádegisverður er í boði á öllum þessum stöðvum og kaffiveitingar. Að auki bjóða flestar félagsmiðstöðvar upp á baðþjónustu. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur eru einnig starfræktar á mörgum stöðvunum.

Hver stöð býður upp á sína eigin dagskrá sem samanstendur af ýmsum spennandi hlutum. Sem dæmi má nefna: vinnustofur, hagleikssmiðjur, listasmiðjur og klúbbastarf ýmiskonar, spilamennsku, skoðunarferðir, dans og leikfimi. Síðan eru ýmsir viðburðir árlegir og/eða tilfallandi, svo sem grillveisla, haustfagnaður og þorrablót. Lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf og hver og einn getur haft áhrif á þróun þess.

Um er að ræða þjónustu sem er opin öllum Reykvíkingum án sérstakra skilyrða. Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku í félagsstarfi, aðeins að mæta á staðinn. Ef fyrirhuguð er þátttaka í ákveðnum námskeiðum eða ferðum þarf að skrá hana.

Verkefnastjóri er Hörður Sturluson og virkniþjálfi er Linda Birna Sigurðardóttir.