Skólahljómsveit Austurbæjar

Laugalækjarskóli
Leirulækur 2
105 Reykjavík

""

Skólahljómsveit Austurbæjar var stofnuð árið 1954 og var önnur tveggja fyrstu skólahljómsveita í Reykjavík. Á sjötta hundrað nemendur stunda nám í skólahljómsveitunum fjórum sem starfræktar eru í Reykjavík. Skólahljómsveit Austurbæjar þjónar Álftamýrarskóla, Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla, Hvassaleitisskóla, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla, Laugarnesskóla, Réttarholtsskóla og Vogaskóla. Kennsla fer fram í Laugalækjarskóla. 

Stjórnandi er Snorri Heimisson

Skóladagatal

Hér finnur þú skóladagatal skólahljómsveitar Austurbæjar. Í skóladagatali er eru skráðir tónleikar, fundir og frídagar ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir nemendur og forsjáraðila.

Starfsfólk

Viltu hafa samband? 
Hér getur þú séð meira um hljómsveitastjóra og kennara.

Kennsla og námsmat

Aðalfag allra í Skólahljómsveit Austurbæjar er samspil í hljómsveit. Hver nemandi fær einkakennslu á sitt hljóðfæri frá upphafi og bætist svo tónfræði við sem aukagrein eftir 2-3 ár. 

Nám í skólahljómsveitum er tvíþætt:

  • Virk þátttaka í A, B eða C sveitum eftir aldri og færni nemenda.
  • Auk þátttöku í hljómsveitaræfingum fær hver nemandi hljóðfærakennslu í 50-60 mínútur á viku eftir aldri og kunnáttu.
 

Hljóðfærakennsla fer eftir atvikum fram á skólatíma eða eftir skólatíma. Skipulag kennslustunda á skólatíma er í samráði við skólastjóra, viðkomandi grunnskólakennara og með samþykki forráðamanna. Hljóðfæranám byggir að stórum hluta á heimaæfingum. Því er nauðsynlegt að nemendur hafi aðstöðu og njóti stuðnings heima fyrir.

Ástundun

Nemendur mæti á allar hljómsveitaræfingar, spilatíma og aðra skipulagða viðburði á vegum skólahljómsveitarinnar. Öll forföll skal tilkynna með fyrirvara. Til að viðunandi árangur náist í hljóðfæranámi þarf nemandi að leika á hljóðfæri sitt á hverjum degi.

Námsmat

Námsmat fer fram a.m.k. einu sinni á ári samkvæmt starfsáætlun skólahljómsveita.
Felst það í:

  • Ársprófi skólahljómsveita eða grunn-/miðprófi tónlistarskóla eftir því sem við á.
  • Umsögn og/eða einkunn kennara og stjórnanda um ástundun nemanda.