Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 16. nóvember 2016 og borgarráði Reykjavíkur þann 24. nóvember 2016 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Byko-reits, reitur 1.138 sem afmarkast af Hringbraut, Framnesvegi og Sólvallagötu. Helstu breytingar eru að skilgreina fjölda íbúða samkvæmt AR 2010-30, skilgreina landnotkun í samræmi við stefnu í AR 2010-30 um aðalgötur ásamt hækkun á hæðarkvóta. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 7. desember 2016 til og með 23. janúar 2017. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 23. janúar 2017. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.