Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 29. mars 2017 og borgarráði Reykjavíkur þann 6. apríl 2017 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Árbær-Selás. Í breytingunni felst felst að afmörkuð er lóð og byggingarreitur um Árbæjarblett 62/Þykkvabæ 21. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan er einnig aðgengileg í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 10. apríl 2017 til og með 22. maí 2017. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 22. maí 2017. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.