Hækkun á styrk svifryks í borginni

Heilbrigðiseftirlit Umhverfi

Svifryk

Styrkur svifryks (PM10) hefur verið hár á flestum mælistöðvum í borginni í dag, 29. febrúar, frá því að morgunumferð fór af stað. Ökumenn eru hvattir til að skilja bílinn eftir heima á morgun og þau sem geta, að vinna í fjarvinnu.

Í dag, 29. febrúar, er vindhraði aðeins 0-2 m/s í veðurstöðvum á vef Veðurstofu Íslands. Klukkan tólf var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 142 míkrógrömm á rúmmetra, á sama tíma var styrkurinn 122,4 míkrógrömm á rúmmetra við leikskólann Lund og 38,0 míkrógrömm á rúmmetra við Vesturbæjarlaug. Þar sem aðeins er hægur vindur, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag er líklegt að styrkur svifryks fari hækkandi í tengslum við álagstíma í umferðinni. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að styrkur svifryks verði áfram hár. 

Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring fyrir PM 10 (svifagnir um 10 míkrógrömm að stærð). Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót aðallega frá díselbruna, jarðvegsagnir, salt, aska og fleira.

Rykbundið í nótt

Þjóðvegir í þéttbýli og helstu stofngötur verða rykbundnar í nótt til að draga úr uppþyrlun. Almenningur er einnig hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er; geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er. Þau sem eru viðkvæm fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is  Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu. 

Skýringar

Loftgæðavefur Umhverfisstofnunar metur loftgæði með eftirfarandi litakóða: Loftgæðavefur Umhverfisstofnunar metur loftgæði með eftirfarandi litakóða (sjá: Loftgæði

Loftgæði

Mjög góð = Lítil sem engin  loftmengun. Líklega engin heilsufarsleg áhrif.

Góð = Lítilsháttar loftmengun. Lítil sem engin heilsufarsleg áhrif.

Sæmileg = Nokkur loftmengun. Mjög viðkvæmir einstaklingar og einstaklingar með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma geta fundið fyrir einkennum vegna aukins styrks loftmengunarefna í andrúmslofti.

Óholl fyrir viðkvæma

Óholl