Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 295

Endurskoðunarnefnd

Ár 2024, þriðjudaginn 27. febrúar var haldinn 295. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 15:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Lárus Finnbogason, Sigrún Guðmundsdóttir, Sunna Jóhannsdóttir og Einar S Hálfdánarson. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, staðgengill innri endurskoðanda. 

Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. 

Þetta gerðist:
 

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2023 fyrir Carbfix hf. IER240200020

    Davíð Arnar Einarsson, Bjarni Már Jóhannesson, Erling Tómasson, Bryndís María Leifsdóttir, Brynja Kolbrún Pétursdóttir og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi Carbfix hf. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn félagsins.  

     

  2. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2023 ásamt trúnaðarmerktum drögum að endurskoðunarskýrslu fyrir Ljósleiðarann hf. IER240200020

    Davíð Arnar Einarsson, Bjarni Már Jóhannesson, Halla Björg Haraldsdóttir, Bryndís María Leifsdóttir og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
    Endurskoðunarnefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu á drögum að ársreikningi Ljósleiðarans hf. Endurskoðunarnefnd telur að ársreikningurinn sé tilbúinn til afgreiðslu í stjórn félagsins.  

    Einar S Hálfdánarson leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ég tek undir að ársreikningarnir Carbfix og Ljósleiðarans teljast tilbúnir til afgreiðslu í stjórnum félaganna. Bæði félögin stunda áhættusamar fjárfestingar og eru alfarið háð móðurfélagi sínu um fjármögnun þar til aðrir kunna að ákveða að fjárfesta í félögunum. Að mínu áliti er það ekki hlutverk endurskoðunarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur að taka afstöðu til framtíðarrekstrarhæfis (e. going concern) félaganna, heldur er það hlutverk stjórna og hluthafa. Með því áliti sínu að ársreikningarnir Carbfix og Ljósleiðarans teljast tilbúnir til afgreiðslu í stjórnum félaganna tel ég ekki að nefndin taki  afstöðu til framtíðarrekstrarhæfis þeirra, enda ekki hennar hlutverk.

     

Fundi slitið kl. 16:00

Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson

Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 27. febrúar 2024