Barnamenningarhátíð 2024 - Lýðræði

Líf og fjör í Ævintýrahöllin í Spönginni í Grafarvogi í fyrra.
Ævintýrahöllin í Borgarbókasafninu í Spönginni í Grafarvogi í fyrra

Undirbúningur Barnamenningarhátíðar 2024 er nú í fullum gangi, en hátíðin fer fram dagana 23. -28. apríl næstkomandi

Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi að menningu barna, með börnum og fyrir börn. Og verður boðið upp á fjölbreytta ókeypis dagskrá fyrir alla fjölskylduna á meðan á hátíðinni stendur.

Þema Barnamenningarhátíðar 2024  er lýðræði sem á einstaklega vel við þar sem Ísland fagnar í ár 80 ára lýðveldisafmæli í ár. Ísland hlaut fullveldi árið 1918 og varð lýðveldi þann 17. júni 1944. 
 

Lýðræði er þýðingarmikill þáttur í barnamenningu og mikilvægt að börn tileinki sér lýðræðishugsun eins og að taka ábyrgð, að vera hluti af samfélagi og að virða mismunandi skoðanir.

Borgarbókasafnið hefur tekið saman lista yfir nokkrar góðar bækur sem fjalla á einn eða annan hátt um lýðræði og þær áskoranir sem samfélög standa frammi fyrir þegar lýðræði er ábótavant.

Barnamenningarhátíð er ein af megin þátttökuhátíðum borgarinnar. Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og fara fjölbreyttir viðburðir fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum, listaskólum og víðar. Barnamenningarhátíðin rúmar allar listgreinar fyrir börn og fjölskyldur þeirra.