Tillaga að starfsleyfi - Isavia innanlandsflugvellir ehf., Reykjavíkurflugvöllur "Skeifan"

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Isavia innanlandsflugvellir ehf. á Reykjavíurflugvelli, í svokallaðri "Skeifu" (sjá mynd), vestan við flugbraut 01/19 og norðan við flugskýli 3, vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða æfingasvæði slugvallaslökkviliðs. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 2. febrúar til 1. mars 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is