Borgarráð - Fundur nr. 5678

Borgarráð

Ár 2022, fimmtudaginn 06. október 2022 var haldinn 5678. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:07. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem, Heiða Björg Hilmisdóttir, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon, Pawel Bartoszek og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þorsteinn Gunnarsson, Ebba Schram og Hulda Hólmkelsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 4. október 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti vegna lóðanna Bíldshöfða 7 og Breiðhöfða 3, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22020152

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 4. október 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð hafni tilboði í lóðina Krókháls 20, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22090183

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 3. október 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki samkomulag við landeiganda að jörðinni Jörfa á Kjalarnesi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS21110028

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 3. október 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki kaupsamning og afsal vegna spildu úr lóðinni Jörfa á Kjalarnesi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS21110028

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. október 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar reglur um úthlutun lóða til trú- og lífsskoðunarfélaga.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22090194

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að haga framkvæmd þannig að hið sama gildi um öll trú- og lífskoðunarfélög. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er úrelt að mati fulltrúa Flokks fólksins að einstök félög fái ívilnun á grundvelli trúarlegrar /siðfræðilegrar afstöðu. Þess vegna er rétt að þau greiði fyrir lóðir og byggingar rétt eins og önnur félög.
     
    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna fagnar því að loksins séu komnar reglur um úthlutun lóða til trúar- og lífsskoðunarfélaga í Reykjavík. Hins vegar er löngu orðið tímabært að afnema lög sem skylda sveitarfélög til að úthluta lóðum til Þjóðkirkjunnar endurgjaldslaust. Öll trúar- og lífsskoðunarfélög eiga að sitja við sama borð þegar það kemur að lóðaúthlutunum og ívilnunum og það er skoðun áheyrnarfulltrúans að lóðir eigi ekki að vera endurgjaldslausar.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. október 2022:

    Lagt er til að Vestmannaeyjabær verði heiðursgestur menningarnætur í Reykjavík 2023 í tilefni af 50 ára goslokaafmæli og langvarandi vinatengslum bæjarfélaganna. Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar en hátíðin er alltaf haldin fyrsta laugardag eftir 18. ágúst en þann dag 1786 fékk Reykjavíkurborg kaupstaðarréttindi. Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni. Um árabil hefur tíðkast að bjóða völdum sveitarfélögum að vera heiðursgestur á Menningarnótt og er sannur heiður að bjóða Vestmannaeyjabæ sem heiðursgesti 2023.

    Samþykkt. MSS22090232

    Borgarráð ásamt áheyrnarfulltrúum leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Mikið gleðiefni er að geta boðið Vestmannaeyingum sem heiðursgestum á Menningarnótt. Þetta er gert í tilefni af 50 ára goslokaafmæli en á þeim tíma sýndu Reykvíkingar að það er hægt að taka á móti þúsundum fólks án heimilis á einni nóttu. 

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 3. október 2022, þar sem erindisbréf starfshóps um risaeðlu í Reykjavík er lagt fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS22100003

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Þó svo Ísland sé sannanlega eitt þeirra landa þar sem útilokað má telja að risaeðlur hafi nokkurn tíma gengið um, þá er ekki hægt að líta framhjá því tækifæri sem felst í því þegar slík rausnarleg gjöf sem risaeðlubeinagrind er í boði. Það væri sannarlega jákvætt fyrir vísindavitund og vísindalæsi barna og almennings að hafa aðgang að því að sjá slíkar minjar. Þó svo Reykjavíkurborg ætli sér ekki að opna risaeðlusafn á vegum borgarinnar, þá er eðlilegt að þiggja svona gjöf og fara í skoðun á því hvort áhugi sé á því hjá öðrum aðilum, t.d. í ferðaþjónustu, taka að sér rekstur á slíkri sýningu.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 4. október 2022, varðandi viðbrögð við erindi umboðsmanns barna um gjaldtöku í strætisvögnum fyrir börn, ásamt fylgiskjölum. MSS22090127

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi sósíalista getur ekki séð að spurningum Umboðsmanns barna hafi verið svarað í þessu svarbréfi. Spurningarnar snéru að ýmsu varðandi hækkun á árskorti ungmenna úr 25.000 kr. í 40.000 kr. Umboðsmaður barna óskaði svara við því hvernig umrædd hækkun samræmist bestu hagsmunum barna á höfuðborgarsvæðinu og hvort mat hefði verið lagt á áhrif þessarar ákvörðunar á þau börn sem ljóst er að hækkunin snerti hvað mest, þ.e. börn sem búa við fátækt og erfiðar félagslegar aðstæður. Umboðsmaður barna óskaði líka eftir skýringum á því hvernig umrædd sveitarfélög sem koma að byggðasamlagi strætó og hafa öll lýst því yfir að vera barnvæn, rökstyðja umrædda hækkun á nauðsynlegri þjónustu fyrir börn. Fulltrúi sósíalista vill vekja athygli á því að þó svo að ýmsar breytingar hafi verið gerðar á gjaldskrá sem eiga að mæta stöðu fjölskyldna, þá bitnar umrædd hækkun mjög illa á fátækum börnum. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarstjóri hefur loksins svarað erindi umboðsmanns barna um gjaldtöku í strætisvögnum fyrir börn mörgum mánuðum eftir að erindið var sent borgarstjóra fyrst í janúar. Umboðsmaður þurfti að ítreka að fá svar sem er auðvitað ekki boðlegt eða góð stjórnsýsla. Stjórnvöldum er skylt að veita umboðsmanni barna allar þær upplýsingar sem að hans mati eru nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu Í „töf“ á svari felst ákveðið viðhorf að mati fulltrúa Flokks fólksins. Erindið var að óska svara við því hvernig umrædd hækkun samræmist bestu hagsmunum barna á höfuðborgarsvæðinu. Í svari borgarstjóra kemur fram að að stefnt sé að því að börn fái frítt í strætó svona þegar betur árar ef má orða svo. Ekki er svarað hvernig hækkunin kemur við börn, hagsmunum þeirra og börnum fátækra foreldra. Borgarstjóri hvetur umboðsmann barna í lok bréfsins til að snúa sér með málið til Alþingis Íslendinga. 

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 3. október 2022, varðandi fyrirhugaða ferð borgarstjóra til Amsterdam á CityLab the Mayors Innovation Studio dagana 8. til 12. október 2022, ásamt fylgiskjölum. MSS22100002

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Lagt er fram í borgarráði beiðni um samþykki ferðar borgarstjóra, aðstoðarmanns hans, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og sviðsstjóra þjónustu- og nýsköpunarsviðs til Amsterdam á Bloomberg CityLab & the Mayors Innovation Studio dagana 8. til 12. október 2022. Sjálfsagt er að borgarstjóri fari enda stendur Bloomberg CityLab straum af kostnaði vegna flugs hans og gistingar. Flokkur fólksins spyr hvort hinir þrír geti ekki tekið þátt í gegnum fjarfundarbúnað? Er það ekki stefna meirihlutans að gæta aðhalds og velta við hverri krónu? Fjárhagur borgarinnar er á heljarþröm og kostnaður vegna ferðarinnar fyrir þrjá aðila er umtalsverður. 

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. október 2022:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að taka tilboði Landsbankans í langtíma lánaramma til 15 ára að fjárhæð allt að 6.000 m.kr. Fjármagnið verður nýtt til fjármögnunar á fjárfestingaráætlun borgarinnar. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 28. september 2022.

    Trúnaðarmerkt greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Halldóra Káradóttir og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22090047

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun:

    Nú ríður á að vera með skýra pólitíska forgangsröðun í þeirri vinnu sem framundan er að koma rekstri borgarinnar á réttan kjöl og forða henni frá því að verða ógjaldfær. Það er áhyggjuefni hve lítill áhugi er á skuldabréfaútboði borgarinnar og að borgin þurfi að taka lán. Þó borgin taki þessari lánalínu þá liggur það fyrir að draga þarf úr kostnaði og stefna á minni skuldsetningu og jafnvel selja eignir. Borgin er í viðkvæmri stöðu og geta utanaðkomandi og óvæntir þættir haft mikil áhrif á rekstur Reykjavíkur. Ísland eins og heimurinn allur virðist stefna í samdrátt sem gæti orðið til þess að fólk missi vinnuna sem skilar sér í lægra útsvari og fjölgun á fjárhagsaðstoð. Það er mikilvægt að búa sig vel undir komandi misseri og forgangsraða í þágu velferðar, menntunar og umhverfisins og fyrir fólk í viðkvæmri stöðu. Það er hægt að vera vitur eftir á en í ljósi stöðunnar hefði verið skynsamlegast að leggja til hliðar þær auknu tekjur sem urðu til í góðærinu, fyrir mögru árin.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 3. október 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að Reykjavíkurborg veiti 321,2 m.kr. viðbótarframlagi til rekstrar Strætó bs. á árinu 2022. Fjármála- og áhættustýringarsviði verði falið að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna þessa.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22090037

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja 321 m.kr. viðbótarframlag til Strætó fyrir árið 2022. Rekja má þörfina til heimsfaraldurs COVID þar sem farþegagrunnur fyrirtækisins hrundi. Eftir því sem leið á árið 2022, tók farþegum að fjölga á nýjan leik en halinn sem heimsfaraldur skildi eftir sig varð eftir. Í nágrannalöndum okkar stóð ríkið með sveitarfélögum og tók kostnaðinn vegna taps á almenningssamgöngum á sig. Markmiðið sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru sammála um er að skerða ekki þjónustu, heldur frekar auka framlög og hækka gjaldskrár. Það að fólk geti treyst á þjónustu Strætó er mikilvæg inneign sem ekki má ganga á.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að styrkja og efla Strætó þar sem um mikilvægar almenningssamgöngur er að ræða. Líkt og ASÍ hefur bent á þá var framlag ríkisins til Strætó rúmur milljarður árið 2021 en 1,8 milljarðar til viðbótar hefði þurft til að gera þjónustuna gjaldfrjálsa. Til samanburðar námu niðurgreiðslur ríkisins vegna kaupa á rafbílum, tengiltvinnbifreiðum og vetnisbifreiðum 9 milljörðum kr. árið 2021. Fulltrúi sósíalista ítrekar mikilvægi þess að hið opinbera fjármagni Strætó svo að hægt sé að veita góða þjónustu, enda margt fólk sem reiðir sig á Strætó.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Lagt er til að Reykjavíkurborg veiti 321,2 m.kr. viðbótarframlagi til rekstrar Strætó bs. á árinu 2022. Birt eru framlög hinna sveitarfélaganna. Reykjavík er stærsti eigandi og borgar þar af leiðandi langmest. Því miður hefur stærsti eigandinn ekki ákvörðunarvaldið í samræmi við ábyrgðina. Galli byggðasamlagskerfisins sést hér í hnotskurn. Nú er það vitað að bs. kerfið er ekki lýðræðislegt og kemur illa út fyrir Reykjavík. Mánaðarframlag Reykjavíkur er 214.113 þ.kr. en Seltjarnarness er 6.288. þ.kr. Byggðasamlagskerfið hentar ekki þessum rekstri sem er eiginlega krísurekstur því vandamál eru sífellt að koma upp. Að hækka fargjaldið hefur fælingarmátt. Nú er loku fyrir það skotið að þeir sem hafa íhugað að draga úr bílnotkun og nota strætó hafi áhuga á því. Allir þeir sem myndu vilja stökkva upp í strætó endrum og sinnum hafa án efa tapað þeim áhuga. Að skerða þjónustu frekar mun ganga af Strætó bs. dauðu. Mistök voru gerð í að fjárfesta í rándýru greiðslukerfi Klapp á þessum erfiðu tímum. Gagnrýna má óskynsemi í rekstri þegar horft er á þá ákvörðun og eins kaup á vögnum. Fyrir löngu hefði átt að taka ákvörðun um að allir strætóvagnar séu metanvagnar.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun:

    Strætó bs. á að vera lögbundin grunnþjónusta og þras um erfiða rekstrarstöðu hans á ekki að bitna á notendum. Það á að fullfjármagna Strætó bs., auka tíðni, bæta þjónustu og styrkja lykilleiðir. Ríkið á að koma að rekstri hans á höfuðborgarsvæðinu og um allt land og festa tilvist hans sem grunnþjónustu í lög.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 6. október um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023, 1. mál
    Frestað.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22100001

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 21. september 2022, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 19. september 2022, á leyfi Hjallastefnunnar Grunnskóla ehf. til skólastarfs í húsnæði að Skógarhlíð 5 og tímabundins leyfis til skólastarfs fyrir 6. og 7. bekk, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS22080026

    Fylgigögn

  14. Lagt fram minnisblað skóla- og frístundasviðs, dags. 30. september 2022, varðandi uppbyggingarverkefni í leikskólamálum.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22010084

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér eru dregnir fram kostir og gallar ólíks húsnæðis fyrir leikskóla í Reykjavík. Ljóst má vera að faglegt starf í leikskólum getur farið fram í ýmis konar húsnæði þótt ákjósanlegasti kosturinn er alltaf sérhannað leikskólahúsnæði með leikskólalóð. Hinsvegar er mikilvægt að Reykjavík geti haldið áfram að bjóða ungum börnum leikskólapláss.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að bregðast af krafti við leikskólavandanum í borginni. Hann snýr ekki aðeins að biðlistavandanum, en áralöng uppsöfnuð viðhaldsþörf á skólahúsnæði leik- og grunnskóla borgarinnar virðist nú hafa komið skólastarfi í uppnám víða um borg. Fjöldi fjölskyldna í borginni fær ekki þann aðgang að leikskólaþjónustu sem þeim hefur verið lofað. Hér þarf að gera betur.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Birt er útfærsla á sex uppbyggingarverkefnum í leikskólamálum. Gripið er hér niður í tillögu 2 sem varðar nýtingu á lausu húsnæði. Á lista yfir húsnæði sem kemur til greina er Brákaborg en þá spyr fulltrúi Flokks fólksins hvort það húsnæði sé ekki einhver framtíðarmúsík þar sem fara þarf í umtalsverðar framkvæmdir á húsnæðinu. Hækkun á niðurgreiðslu til dagforeldra er góður kostur sem Flokkur fólksins styður, nokkrar útfærslur eru birtar. Hvergi í þessu yfirliti er minnst á tillögur Flokks fólksins um styrki og heimgreiðslur. Tillögur Flokks fólksins hafa greinilega ekki fengið skoðun. Flokkur fólksins fagnar því að loksins eigi að nútímavæða verklag við innritun leikskóla eins og önnur sveitarfélög hafa gert fyrir löngu. Verklagið er aftur úr fornöld þrátt fyrir milljarða fjárveitingu í stafræna umbreytingu. Enn og aftur kemur fram í svörum að verið sé að fara í „notendarannsóknir“ og þannig reynt að finna upp ferla sem fyrir löngu er búið að finna upp og koma í virkni. Það getur ekki verið að rafrænir ferlar við innritun barna í leikskóla séu hvergi til.

    Fylgigögn

  15. Lagt er til að Örn Þórðarson taki sæti sem varamaður í stjórn Faxaflóahafna.
    Samþykkt. MSS22090053

  16. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fylgigögn með ársfjórðungsyfirliti húsnæðisáætlunar, sbr. 43. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. september 2022. Einnig lögð fram umsögn velferðarsviðs, dags. 3. október 2022.
    Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn einu atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22090006

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Á sama tíma og upplýsingar um húsnæðisuppbyggingu eru lagðar fram, er einnig mikilvægt að sjá hvernig gengur að mæta þeim sem eru í þörf fyrir húsnæði. Þann 1. september 2022 voru t.a.m. 604 að bíða eftir almennu félagslegu leiguhúsnæði hjá borginni. Ef biðtími er skoðaður þá eru 50 umsækjendur af 604 sem hafa beðið í þrjú ár eða lengur eftir almennu félagslegu leiguhúsnæði og þar af eru fjórir umsækjendur með börn. Margar ástæður geta legið þar að baki en mikilvægt er að fylgjast vel með stöðu mála til að mæta öllum þeim sem eru í þörf fyrir húsnæði. Þá kemur einnig fram að fjöldi umsækjenda um húsnæði fyrir fatlað fólk sem hefur beðið í þrjú ár eða lengur eftir úthlutun eru 67 af 137 umsækjendum. Ástæða þessa er helst skortur á úrræðum sem gert er ráð fyrir að unnt verði að mæta með nýlega samþykktri uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk. Í umsögn með tillögunni kemur fram að átak verður gert í að tilkynna fólki á biðlistanum reglulega um stöðu umsóknar á biðlista. Umsögn með tillögunni fjallar um stöðu þeirra sem bíða eftir húsnæði hjá borginni út frá tegund húsnæðis og fjölskyldugerð. 

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að grunnlaun borgarfulltrúa og fyrstu varaborgarfulltrúa hækki ekki í takt við þróun launavísitölu, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl 2020. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 3. október 2022.
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn einu atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22090130

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Grunnlaun borgarfulltrúa hafa hækkað um 175.017 kr. frá framlagningu tillögunar, sem var í apríl 2020. Tillagan snýr að því að grunnlaun borgarfulltrúa og 1. varaborgarfulltrúa taki ekki hækkunum í takt við þróun launavísitölu líkt og þau hafa gert. Grunnlaunin miða við þróun launavísitölu frá marsmánuði 2013 og uppfærast í janúar og júlí. Tillagan ávarpar það að á meðan að COVID-19 faraldurinn gekk yfir og samfélagið tókst á við efnahagslegar afleiðingar var mikilvægt að hinir betur launuðu í ráðandi stéttum sýndu ábyrgð í verki. Fyrsta skrefið í þá átt er að tryggja að laun borgarfulltrúa taki ekki hækkunum á komandi mánuðum. Grunnlaun borgarfulltrúa voru 773.464 kr. í apríl 2020 og eru nú 948.481 kr. Mikil áhersla hefur verið lögð á hversu jákvætt það hafi verið að aftengja laun borgarfulltrúa við ákvarðanir kjararáðs á sínum tíma. Hér minnir fulltrúi sósíalista á að hækkun í takt við þróun launavísitölu er mikil þegar um er að ræða svo hjá laun sem laun borgarfulltrúa eru, sérstaklega í samhengi við laun annarra sem vinna innan Reykjavíkurborgar. Áhersla hefur verið lögð á hagræðingarkröfu á sviðum borgarinnar, fulltrúi sósíalista veltir fyrir sér af hverju það eigi ekki við um laun borgarfulltrúa, sérstaklega í núverandi efnahagslegu ástandi.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarstjórn sameinaðist á sínum tima um að hafna hækkun kjararáðs og fara að kröfu verkalýðshreyfingarinnar og tengja laun við launavísitölu. Laun borgarfulltrúa eru enda lægri en þau hefðu verið ef þetta hefði ekki verið gert. Ekki er hægt að fallast á tillögu Sósíalista um það sé farsælt að borgarfulltrúar taki aftur upp þann hátt að ákvarða eigin laun. Viðmiðun við vísitölu er þar eðlilegri.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram svar Vegagerðarinnar, dags. 26. ágúst 2022, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um gjaldskrárhækkanir í Strætó til eldri borgara, sbr. 28. lið fundargerðar borgarráðs frá 21. júlí 2022. MSS22070135

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Spurt var um rökin fyrir að hækka gjöldin á öryrkja og aldraða úr 155 kr. upp í 245 kr. í landsbyggðarvögnum. Vegagerðin svarar fyrirspurninni þar sem hún rekur landsbyggðarvagna. Hér er um viðkvæma hópa að ræða og hafa margir lítið milli handana vegna skerðinga. Í svari kemur fram að unnið sé að samræmingu á verðskrá landsbyggðarvagna og hluti af því er að innleiða nýtt greiðslukerfi. Strætó hefur innleitt Klapp greiðslukerfið sem hefur valdið þessum hópum sérstaklega ómældum vandræðum sem ekki þarf að rekja hér. Rökin í svari Vegagerðarinnar eru afar veikburða og mótmælir Flokkur fólksins þessum miklu hækkunum.

    Fylgigögn

  19. Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 19. ágúst 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um gagnaleka, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 11. ágúst 2022. MSS22080059

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins þakkar svarið og vill taka það fram að öryggismál Reykjavíkurborgar á að taka alvarlega. Fulltrúi Flokks fólksins hefur gagnrýnt niðurlagningu starfs öryggisstjóra sviðsins árið 2020 og telur að með því hafi ekki verið tekið skref til aukins öryggis gagna borgarinnar. Fram hefur komið í svörum sviðsins að einhverskonar tilraunastarfsemi eða þróanir um öryggismál hafi farið í gang í kjölfar þeirrar uppsagnar öryggisstjóra. Nú er það svo að oft eru opinberar stofnanir sem og stærri fyrirtæki á markaði, með sinn eigin öryggisfulltrúa en þannig er það ekki hjá Reykjavíkurborg núna. Fulltrúi Flokks fólksins telur að brýnt sé að innri endurskoðun eða utanaðkomandi fagaðili verði fenginn til þess að fara yfir öryggismál sviðsins og Reykjavíkurborgar í heild. Mikilvægt er að gerð verði úttekt á því hvort ákvörðun um niðurlagningu á stöðu öryggisfulltrúa sviðsins hafi sett öryggismál Reykjavíkur í mögulega hættu.

    Fylgigögn

  20. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 29. september 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um leigubílanotkun starfsfólks, sbr. 48. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. september 2022. MSS22090012

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins spurði um kostnað við leigubílanotkun starfsmanna borgarinnar. Ítarleg tafla fylgir þar sem kostnaður er sundurliðaður eftir nefndum/ráðum. Ljóst er að leigubílanotkun borgarstarfsmanna er umtalsverð. Það er miður að fá það í svari að ekki sé hægt að greina frá erindum eða starfstitli notenda þar sem ekki er haldið utan um slíkar skráningar sérstaklega. Þar sem þessum upplýsingum er haldið leyndum þá er erfitt að átta sig á því hversu stór hluti af þessu er bruðl eða sóun. Í hvaða tilfellum hefði viðkomandi geta tekið hjól eða strætó sem meirihlutinn í borginni hvetur fólk mjög mikið til að gera. Í einhverjum tilfellum er nauðsynlegt að taka leigubíl, um það er ekki deilt. Leigubíla notkun er afar misjöfn eftir sviðum. Ef tekið er árið 2020 (fyrir COVID) er hástökkvari í leigubíla notkun velferðarsvið 35.171.154, því næst skóla- og frístundasvið 7.612.951, (umtalsvert lægra), þá kemur ÍTR 4.514.326. Aðrir eru lægri. Heildarsumma fyrir þetta ár er 52. 448.169. Af þessu má draga þá ályktun að velferðarsvið hlýtur að verða að fara að skoða hvort ekki sé hægt að taka færri leigubíla. Leigubíl á einfaldlega aðeins að nota í undantekningartilvikum.

    Fylgigögn

  21. Lagt fram svar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, ódags., við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fyrrverandi slökkviliðsmenn sem veikjast af starfstengdum sjúkdómi, sbr. 32. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. ágúst 2022. MSS22080170

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram nokkrar spurningar sem snúa að hvernig haldið er utan um fyrrverandi slökkviliðsmenn sem glíma við sjúkdóma sem eru afleiðing af starfi þeirra og hvort reynslumiklum slökkviliðsmönnum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins séu boðnir starfslokasamningar en ekki hlutastarf. Einnig var spurt um stuðninginn við slökkviliðsmenn sem veikst hafa af starfstengdum sjúkdómum og aðstoð með lyfjakostnað. Í svari segir að ekki sé haldið utanum veikindi fyrrverandi slökkviliðsmanna af hálfu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Þetta þykir fulltrúa Flokks fólksins miður. Væri það ekki réttlátt og mannlegt að halda utan um fyrrverandi starfsmenn sem glíma t.d. við starfstengt krabbamein? Margir glíma án efa einnig við andleg veikindi vegna álags sem afleiðing starfsins. Hvað varðar starfslok þá er því velt upp hvort slíkir samningar komi til af því slökkviliðsmönnunum er ekki treyst lengur eða af því þeir sjálfir treysti sér ekki lengur í starfinu. Fulltrúi Flokks fólksins fær það á tilfinninguna að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vilji losna við slökkviliðsmenn þegar náð er vissum aldri. Sjálfsagt væri að bjóða þeim dagvinnuverkefni þar sem reynsla og þekking þeirra nýtist. Loks segir í svari að engir styrkir séu í boði eða frekari læknisskoðun á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir veika fyrrverandi slökkviliðsmenn sem væri auðvitað sanngjarnt að væri fyrstu árin eftir að störfum lýkur. 

    Fylgigögn

  22. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 26. og 29. ágúst og 21. september 2022. MSS22010020

    Fylgigögn

  23. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 27. september 2022. MSS22010022

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 9. lið fundargerðarinnar: 

    Kynnt er verkefnið Sendiherrar í Breiðholti. Flokkur fólksins fagnar þessu verkefni sem er samfélagsverkefni mismunandi mál-, menningar- og/eða þjóðfélagshópa og Suðurmiðstöðvar í Breiðholti. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samstarf við íbúa af erlendum uppruna. Flokki fólksins finnst þetta nauðsynlegt ekki síst til að stuðla að virkni í hverfisþróun og viðburðum. Fleiri ámóta verkefni væru vel þegin. Nú streymir fólk inn í landið víðsvegar úr heiminum ýmist til að vinna eða leita verndar. Samfélag okkar hefur aldrei verið eins fjölbreytt. Mikil þörf er á ráðgjöf af alls kyns tagi og upplýsingum. Það er skylda okkar og ábyrgð að teygja okkur til þessara hópa og leiða þá til virkni í samfélagið okkar til að þau geti átt hér gæðalíf. 

    Fylgigögn

  24. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 22. september 2022. MSS22010006

    Fylgigögn

  25. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 21. september 2022. MSS22010028

    Fylgigögn

  26. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis frá 28. september 2022. MSS22010030

    Fylgigögn

  27. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 5. október 2022.
    B-hluti fundargerðarinnar er samþykktur. MSS22060175

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar:

    Auglýsingaskilti við Lönguhlíð, standur fyrir auglýsingaskilti: Það er mat meirihlutans í borginni að það séu hverfandi líkur á ónæði frá auglýsingaskiltinu fyrir íbúa og aðra vegfarendur við Lönguhlíð. Spurning hvort það megi draga í efa. Kannski væri gott að hafa einhvern reynslutíma og endurskoða svo þetta skiltamál að honum liðnum. Það er þannig að ef skilti er einu sinni komið upp þá er hætta á að það verði þar að eilífu þótt mikil óánægja sé með það. Fram hefur komið hjá íbúum að ekki hafi verið haft samráð við nema örfáa og að áform um skiltauppsetningu stríði gegn samþykktum. Í markmiðum samþykktar um skilti í Reykjavík segir beinlínis að „skilti séu íbúum borgarinnar ekki til ama eða óþæginda og að þau skerði ekki hönnun mannvirkja, hafi neikvæð áhrif á umhverfi eða skerði ásýnd borgarinnar.“ Einnig segir að halda eigi fjölda skilta í lágmarki og að leggja eigi áherslu á að fjöldi skilta valdi ekki óreglu og ringulreið í sjónlínu gatna. Það hlýtur að eiga að horfa á þessi mál í heild sinni. Um þennan málaflokk þarf eins og aðra að ríkja sátt og skipulag. Ljósaskilti og auglýsingaskilti almennt hafa mikil áhrif á útlit hverfa.

    Fylgigögn

  28. Lagðar fram fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 11. og 18. ágúst og 14. september 2022. MSS22010018

    Fylgigögn

  29. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 21 mál. MSS22090188

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið yfirlitsins: 

    Strætó er á barmi gjaldþrots. Hvernig á fólk að komast leiðar sinnar. Þetta eru einu almenningssamgöngurnar. Strætó þarf að virka og fólk að hafa ráð á að taka sér far. Tíðni strætóferða skiptir miklu máli en ekki síður kostnaður hvers fargjalds. Árskort hafa hækkað svo um munar. Í raun er erfitt að ferðast hagkvæmt með strætó. Hvað varð um loforð Framsóknar um frítt í strætó? Almenningssamgöngur eru í lamasessi en meirihlutinn veðjar á borgarlínu sem allir vita að mun seinka. Nú er Strætó bs., byggðasamlag. Það kerfi hentar illar fyrir rekstur af þessu tagi. Vinna hefur verið í gangi um að gera byggðasamlög skárra rekstrarform með tilkomu stefnuráðs. Mörgum þykir að með stefnuráðinu hafi flækjustig aukist. Til dæmis er ekki tekið á því hvað gera skal í krísum sem sífellt eru að koma upp. Flokkur fólksins telur að finna þurfi annað kerfi en byggðasamlag fyrir Strætó. Stjórn Strætó situr í lokuðu herbergi og tekur ákvarðanir ýmist um að draga úr þjónustu eða hækka fargjöld. Engin stefna, engin aðkoma eigenda og engin aðkoma minnihluta fulltrúa. Hér er ekkert lýðræði.

    Fylgigögn

  30. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS22100008

    Fylgigögn

  31. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Borgarráð samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði, og eftir atvikum nýju sviði menningar-, íþrótta- og tómstunda, að kortleggja náttúrulega baðstaði í Reykjavík þar sem fólk kýs að stunda sjósund til hreyfingar og heilsubótar. Í framhaldinu verið heilbrigðisnefnd falið að skilgreina staðina sérstaklega sem baðstaði í 3. flokki sbr. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 460/2015 um baðstaði í náttúrunni. Jafnframt verði því beint til heilbrigðisnefndar að tryggja reglulegar sýnatökur á skilgreindum baðstöðum í 3. flokki og tryggja viðeigandi öryggismerkingar, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 12. gr. reglugerðarinnar. MSS22100064

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað.

    Fylgigögn

  32. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    6. júní sl. tilkynntu forsvarsmenn nýs borgarstjórnarmeirihluta að málaflokkar íþrótta- og tómstundasviðs og menningar- og ferðamálasviðs yrðu sameinaðir. Þrátt fyrir að fjórir mánuðir séu nú liðnir frá umræddri yfirlýsingu hefur starfsfólk umræddra sviða fengið afar litlar upplýsingar um hvernig staðið verði að sameiningunni fyrir utan það sem hefur komið fram í fjölmiðlum. Slíkur skortur á upplýsingagjöf er ekki í samræmi við viðurkennda breytingarstjórnun í stjórnsýslu. Óskað er eftir því að sem fyrst verði bætt úr upplýsingagjöf til starfsmanna vegna umræddra breytinga. Þá er óskað eftir eftirfarandi upplýsingum: 1.Hvað verður um núverandi starfsmenn á skrifstofum sviðanna? Munu þeir halda störfum sínum, verða endurráðnir eða verða allar stöður í yfirstjórn nýs sviðs auglýstar? 2.    Er ekki nauðsynlegt að eyða óvissu um þessi mál nú þegar gagnvart starfsfólki? 3. Hafa átt sér stað viðtöl við viðkomandi starfsmenn í lykilstöðum sviðanna um þessi mál? 4. Hvenær mun koma í ljós hvort hagræðing verði af sameiningu sviðanna, eins og núverandi meirihluti heldur fram að verði? Óskað er eftir því að greinargerð um vænta hagræðingu og sparnað vegna umræddrar sameiningar verði lögð fyrir borgarráð. 5. Liggur fyrir hver kostnaðurinn verður vegna umræddrar sameiningar árin 2022 og 2023, m.a. vegna ráðgjafarkostnaðar og starfslokasamninga? Óskað er eftir því að greinargerð um slíkan kostnað verði lögð fram í borgarráði sem fyrst. 6. Hvenær er gert ráð fyrir að nýr sviðsstjóri taki til starfa? 7. Hvar verða höfuðstöðvar nýs sviðs til húsa? 8. Hvernig verður stjórnsýslu menningar- og ferðamálasviðs og íþrótta- og tómstundasviðs háttað þar til nýtt svið verður formlega stofnað og nýr sviðsstjóri tekur við störfum? 9. Hvert verður hlutverk núverandi starfandi sviðsstjóra í innleiðingarferlinu? 10. Til hvaða aðila, innan og utan borgarkerfisins, verður leitað varðandi upplýsingar og ráðgjöf vegna sameiningarinnar? 11. Er vinna hafin við gerð nýrrar samþykktar menningar, íþrótta- og tómstundaráðs vegna sameiningarinnar? Verða drög að slíkri samþykkt lögð fyrir ráðið til umsagnar fyrir lokaafgreiðslu í borgarstjórn? MSS22100066

  33. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Nú í vikunni fer borgarstjóri fyrir fjögurra manna sendinefnd borgarinnar á ráðstefnu um nýsköpun í Amsterdam. Óskað er eftir upplýsingum um kostnað borgarinnar vegna ferðarinnar. MSS22100002

  34. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Flokkur fólksins leggur til að borgarráð samþykki að fela skóla- og frístundaráði að skoða fleiri úrræði innan heimaskólanna fyrir börn sem af einhverjum orsökum geta ekki stundað nám í almennum bekk. Hér er átt við smærri, fámennari hópa þar sem börnin fá þjónustu við hæfi. Brúarskóli og Klettaskóli eru báðir sprungnir og er biðlisti í báða. Börn sem koma í Brúarskóla ættu að vera búinn að fá tækifæri til að vera í minni hóp í sínum heimaskóla þar sem er minna áreiti og þar sem hægt er að sinna þeim á einstaklingsgrunni. Ef svigrúm væri fyrir þetta þá myndi biðlistar í sérskóla styttast. Ekki allar umsóknir sem koma inn í Brúarskóla eru tengdar ofbeldi þó svo að langflestar séu það. Hér er ekki átt við sérkennsluúrræðið. Í mörgum tilfellum eru börn sett í sérkennslu aðeins vegna þess að þau eru með hegðunarvanda. Þannig var sérkennsla ekki hugsuð þ.e. sem staður til að taka við börnum sem ekki gátu verið inn í bekk vegna hegðunarvandamála. Sérkennsluúrræðin er auk þess löngu sprungin. MSS22100067

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað.

    Fylgigögn

  35. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Rekstur Strætó hefur verið í járnum að undanförnu. Hækkun fargjalds tók gildi 1. október. Gjaldskrá ungmenna í strætó hækkar verulega eða úr 25.000 kr. í 40.000 kr., en hækkunin er um 60%. Árskort mun einnig hækka umtalsvert. Hér er verið að fara þveröfuga leið en stefnt var að sem var að frítt yrði í strætó fyrir börn. Óttast er að þessi gjaldskrárhækkun mun hafa mest áhrif á börn sem búa við fátækt og erfiðar félagslegar aðstæður. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram fyrirspurn til meirihlutans í borgarstjórn um hvaða áhrif talið er að hækkun strætófargjalds sem tók gildi 1. október hefur á börn sem búa við fátækt? Einnig er spurt hvernig þessi hækkun samræmist loforði meirihlutans um ókeypis fyrir grunnskólabörn í strætó? Óskað er skýringa því þetta samræmist varla hagsmunum barna á höfuðborgarsvæðinu og er sýnilega í hróplegri andstöðu við betri borg fyrir börn. Hætta er á að það muni aukast líkur á að foreldrar aki börnum sínum í tómstundir og ekki er það gott fyrir kolefnissporið. MSS22100068

  36. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fyrirspurn í framhaldi af svari þjónustu- og nýsköpunarsviðs við fyrirspurn Flokks fólksins um gagnaleka. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður komið fram með fyrirspurnir um öryggismál og telur að með niðurlagningu starfs öryggisstjóra sviðsins árið 2020, hafi ekki verið tekið skref til aukins öryggis gagna borgarinnar. Fram hefur komið í svörum sviðsins að einhverskonar tilraunastarfsemi eða þróun varðandi öryggismál hafi farið í gang í kjölfar uppsagnar öryggisstjóra. Í svari þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem vísað er í hér segir að auðvelt sé að rekja atvik ef uppákomur verða. Þeir notendur sem óska eftir möguleika á stjórnendaréttindum þurfa einnig að undirgangast frekari þjálfun í upplýsingaöryggi, en sú þjálfun verður veitt í gegnum Torgið, fræðslukerfi Reykjavíkurborgar. Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvernig þessari þjálfun í upplýsingaöryggi hjá Torginu er háttað í dag. MSS22080059

Fundi slitið kl. 11:35

Einar Þorsteinsson Alexandra Briem

Heiða Björg Hilmisdóttir Hildur Björnsdóttir

Kjartan Magnússon Pawel Bartoszek

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarrad_0610_0.pdf