Appelsínugul viðvörun fyrir morgundaginn - gæti raskað skólastarfi

Skóli og frístund

""

Óveður gæti seinkað ferðum nemenda til skóla á morgun, miðvikudaginn 21. febrúar. Skólar verða opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla. Þetta á sérstaklega við í efri byggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skóla. Með yngri börn er hér átt við 12 ára og yngra.

Foreldrar eru beðnir um að fylgjast vel með veðri í upphafi skóladags á morgun og fylgja börnum sínum í skóla. Sjá frekari upplýsingar á vef Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

In English
Due to weather conditions tomorrow, disruptions in school services may be expected today. Schools are open but parents and guardians are asked to escort children younger than 12 years to school. This especially concerns children living in upper areas that need to cross open spaces on their way to school.