Styrkir Iceland Airwaves um níu milljónir

Menning og listir

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Iceland Airwaves tónlistarhátíðarinnar skrifuðu undir samning í dag um styrk Reykjavíkurborgar til hátíðarinnar.

Undirritunin fór fram í húsakynnum Iceland Airwaves í setri skapandi greina við Hlemm.

Meginmarkmið með stuðningi Reykjavíkurborgar við Iceland Airwaves er að efla jákvæða ímynd íslenskrar tónlistar jafnt innanlands sem utan, vekja athygli á Reykjavík sem tónlistarborg, koma íslenskum tónlistarmönnum á framfæri við erlenda aðila og í erlendum fjölmiðlum og tryggja samfellu og framþróun í árvissri hátíð sem laðar að sér gesti til borgarinnar utan hefðbundins ferðamannatíma.

Iceland Airwaves tónlistarhátíðin hefur verið haldin í miðborg Reykjavíkur frá árinu 2000 og hefur vaxið smám saman í þekkta alþjóðlega tónlistarhátíð. Hátíðin hefur reynst vera stökkpallur fyrir fjölmargar íslenskar hljómsveitir sem sækja á erlenda markaði. Auk þess er hátíðin góð landkynning fyrir Reykjavík og hefur skilað aukningu ferðamanna sem nefna tónlst sem eina af ástæðum ferðalags til Íslands.

Styrkur Reykjavíkurborgar nemur 9 milljónum króna í ár.