Öskurklefinn - öskraðu af lífs og sálarkröftum og fáðu útrás!

Mannlíf Menning og listir

""

Öskurklefinn, eða „Black Yoga Screaming Chamber“ var afhentur Reykjavíkurborg að gjöf í dag við sérstaka athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Um er að ræða innsetningu þar sem gestir geta fengið útrás fyrir tilfinningar sínar.

Öskurklefinn, eða „Black Yoga Screaming Chamber“ er innsetning eftir Ernu Ómarsdóttur dansara, Valdimar Jóhannsson og danshóp þeirra Shalala, en Jón Gnarr, borgarstjóri vígði klefann við opnun Reykjavík Dancefestival í haust  og fékk að launum einn klefa að gjöf.

Öllum formönnum flokkana ásamt fleirum er boðið að vera viðstaddir og fara í klefann. Erna Ómarsdóttir, dansari og Ólafur Darri Ólafsson leikari munu afhenda klefann. Klefinn verður svo til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur næstu vikur.

Hægt er að fara inn í klefann, sem er hljóðeinangraður, einn eða með vini og vera eins lengi og maður vill. Þú getur öskrað af gleði eða gremju, til að gleyma, til að frelsa hug þinn, til að slaka á, til að fá orku, öskra öll vandamál í burtu eða öskra að ástæðulausu. Þetta gæti orðið einstök reynsla.

Að þessu sinni verður unglingum frá frístundamiðstöðvum ásamt borgarfulltrúum boðið að fá útrás fyrir tilfinningar sínar og öskra í klefanum. Klefinn var opnaður í dag miðvikudag klukkan kl. 15:30 og er öllum velkomið að mæta og öskra að vild.

Klefinn er afhentur núna í tengslum við sýninguna "Inn að beini" sem verður sýnd nú á föstudaginn 24. janúar í Þjóðleikhúsinu. Þetta er aukasýning en sýningin var frumsýnd á Reykjavík dancefestival  í haust og komust þá  færri að en vildu.

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að öskra eins og þú getur í Öskurklefanum!