Unglingar í Grafarvogi styrkja Thelmu Ósk Þórisdóttur í Góðgerðarviku

Velferð Skóli og frístund

""

Dagana 9. - 13. desember munu unglingar og félagsmiðstöðvar á vegum frístundamiðstöðvarinnar Gufunesbæjar í Grafarvogi standa fyrir Góðgerðaviku til styrktar Thelmu Ósk Þórisdóttur 13 ára stúlku með meðfæddan efnaskiptagalla. Góðgerðaráð unglinganna sér um framkvæmd og útfærslu vikunnar í samstarfi við starfsfólk félagsmiðstöðvanna en þær eru Dregyn, Fjörgyn, Púgyn og Sigyn.

Meginmarkmið Góðgerðavikunnar er að unglingar kynni sér góðgerðamálefni og vakni til vitundar um það hvernig þeir geta komið öðrum til hjálpar og haft uppbyggileg áhrif á samfélag sitt. Góðgerðaráðið hefur undanfarinn mánuð undirbúið þessa viku og hafa unglingarnir skipulagt tvo stóra viðburði. Fyrst ber að nefna bingókvöld fyrir alla Grafarvogsbúa þann 11. desember í Fjörgyn kl.19.30. Allmörg fyrirtæki hafa lagt til vinninga og kann góðgerðaráð þeim miklar þakkir. Auk þess verða seldar léttar veitingar. Allir sem  hafa áhuga á að styrkja gott málefni eru hjartanlega velkomnir. Hinn viðburðurinn er ball í Sigyn fyrir alla unglinga í Grafarvogi þar sem dj-ar úr röðum unglinganna koma fram.

Allur ágóði sem safnast rennur óskiptur til Thelmu Óskar. Vonast góðgerðaráðið til þess að geta létt undir með Thelmu en hún þarf að halda erlendis á næstu mánuðum í erfiða aðgerð.

Þetta er í áttunda sinn sem unglingar í Grafarvogi efna til Góðgerðarviku, en hugmyndina fengu unglingarnir sjálfir á sínum tíma og hrintu í framkvæmd af miklum hug.

Nánari upplýsingar um vikuna er hægt að nálgast hjá Þorsteini í síma/vefpósti 695-5180/ thorsteinnv@reykjavik.is.