Neðstaland

Frístundaheimili

Fossvogsskóli við Haðaland
108 Reykjavík

""

Um Neðstaland

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið Neðstaland hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 1. – 4.  bekk í Fossvogsskóla. Neðstaland er eitt af átta frístundaheimilum sem tilheyra Kringlumýri, frístundamiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaðahverfis.

Forstöðukona er Kristín María Reynisdóttir, s: 664-7613

 

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Neðstalandi frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Neðstaland er lokað í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Neðstalandi má finna á heimasíðu Fossvogsskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​