Lokaúttekt

Lokaúttekt og vottorð er staðfesting með skoðun frá byggingarfulltrúa að framkvæmdum byggingarleyfis sé lokið samkvæmt samþykktu byggingarleyfi og ákvæðum laga og reglugerða. Heimilt er að gefa út vottorð með athugasemdum ef óloknir verkþættir varða ekki áfangaúttektaskylda verkþætti, öryggi, hollustu eða aðgengi. Hafi mannvirkið ekki verið tekið í notkun fyrir lokaúttekt er hún jafnframt öryggisúttekt.

Unnið er að því að koma beiðni um úttekt á Mínar síður Reykjavíkur en þangað til er sótt um í tölvupósti á upplysingar@reykjavik.is með útfylltu eyðublaði ásamt viðeigandi gögnum.

Meira um lokaúttekt

Þegar framkvæmdum byggingarleyfis er lokið skal eigandi eða byggingarstjóri fyrir hönd eiganda óska eftir lokaúttekt byggingarfulltrúa. 

Í lokaúttekt er kannað um stöðu á byggingarleyfi og með sjónskoðun á framkvæmd samkvæmt samþykktu byggingarleyfi og ákvæðum laga og reglugerða. Samþykktir aðaluppdrættir sem nota skal við úttektina skulu vera fyrirliggjandi á verkstað. Skoðun er samkvæmt atriðum í skoðunarlista og stoðriti frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og niðurstaða úttektar skráð á byggingarleyfi í Mannvirkjaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.  Skoðunarmanni er ekki ætlað að framkvæma prófanir eða mælingar.  Ef vafi er við skoðun á að mæling sé rétt má gera kröfu um sérstaka mælingu. Þegar verkþáttur er þannig að fram þarf að fara virkniprófun skulu yfirlýsingar afhentar til staðfestingar.  Séu athugasemdir gerðar við skoðun skal byggingarstjóri sjá til þess að bætt verði úr með staðfestingu úrbóta eða endurtekinni úttekt fyrir útgáfu vottorðs.

Skráning á byggingarstigi mannvirkis er gerð í kjölfar úttektar byggingarfulltrúa í Fasteignaskrá HMS.
Lokaúttekt með vottorði er byggingarstig B4.

Ferli umsóknar

Ef athugasemdir eru ekki gerðar við móttekna beiðni getur úttekt farið fram og úttektartími er ákveðinn í samráði við umsækjanda. Viðstaddir úttekt auk byggingarfulltrúa og fulltrúa slökkviliðs ef við á, skal vera byggingarstjóri og þeir iðnmeistarar og hönnuðir sem þess óska eða hafa verið boðaðir.

Fyrir úttekt skulu viðeigandi yfirlýsingar vera fyrirliggjandi um frágenga þætti eftir því sem við á samkvæmt byggingarleyfi og byggingarreglugerð. 

Getum við aðstoðað?

Þarftu frekari aðstoð eða fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Þjónustuver borgarinnar getur aðstoðað við almennar fyrirspurnir í síma 411 1111, á netspjalli og í gegnum netfangið upplysingar@reykjavik.is

Fyrirspurnir og ábendingar má senda á upplysingar@reykjavik.is