Krakkakot

Frístundaheimili

Hvassaleitisskóli við Stóragerði 17
108 Reykjavík

""

Um Krakkakot

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið Krakkakot stendur fyrir viðamiklu frístundastarfi fyrir börn í 1. – 4. bekk við Hvassaleitisskóla þar sem áhersla er lögð á að efla þætti eins og félagsfærni, sjálfsmynd og virka þátttöku með skipulögðum hætti. Krakkakot er í innleiðingarferli fyrir viðurkenningu UNICEF á réttindafrístundaheimili og vinnur einnig mikið með hugmyndafræði Frístundalæsis.  Krakkakot er rekið af frístundamiðstöðinni Kringlumýri.  

Forstöðukona er Jenný Huyen Andradóttir

Aðstoðarforstöðumaður er Gunnar Óli Markússon

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Krakkakoti frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Krakkakot er lokað í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Krakkakots má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Krakkakoti má finna á heimasíðu Hvassaleitisskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​