Klapparholt

Frístundaheimili

Norðlingaskóli við Árvað
110 Reykjavík

""

Um Klapparholt

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Klapparholt er frístundaheimili fyrir 1.-4. bekk í Norðlingaskóla og rekið af frístundamiðstöðinni Brúnni. Frístundaheimilið er staðsett inni í skólahúsnæðinu. Þar er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi nemenda lýkur. 

Forstöðumaður er Pétur Finnbogason

Aðstoðarforstöðukona er Lovísa Sólveig Erlingsdóttir

 

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Klapparholti frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Klapparholt er lokað í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Klapparholti má finna á heimasíðu Norðlingaskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​