Jörfi

Leikskóli 

Hæðargarður 27a
108 Reykjavík

Um leikskólann

Opnunartími Jörfa er frá 7:30 til 16:30

Leikskólinn Jörfi er staðsettur við Hæðargarð í Reykjavík. Hann tók til starfa í ágúst 1997 og er í dag fimm deilda leikskóli. Deildirnar heita Hlíð, Holt, Laut, Lundur og Sel. Í Jörfa dvelja 92 börn samtímis á aldrinum eins til sex ára. Aðbúnaður og staðsetning leikskólans er góð með ýmsum möguleikum til útivistar. Í göngufæri eru Hákonarlundur, Elliðaárdalur, Fossvogsdalur og Laugardalur ásamt mörgum öðrum grænum svæðum og görðum.

Leikskólastjóri er Ágústa Hjaltadóttir.

Leikskólinn Jörfi

Viltu vita meira um Jörfa? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið. 

Hugmyndafræði

Gildi Jörfa eru gleði, virðing og vinátta

 

Uppeldisstefnan sem leikskólinn vinnur eftir byggir á hugmyndafræði John Dewey, kennara og heimspekings. Eitt af einkunnarorðum Dewey var að læra af reynslunni (learning by doing) þar sem sköpunargleði og frumkvæði barnsins er í brennidepli. Lögð er áhersla á jákvæða sjálfsmynd, sjálfstæði og frumkvæði í uppeldinu. Áhugi, sköpun og skoðanir eru virtar í samspili barna við fullorðna og umhverfi sitt.

 

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf í Jörfa? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Starfsáætlun

Starfsáætlun fyrir 2023-2024 er í vinnslu

Hvað er framundan á Jörfa? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar á leikskólanum Jörfa? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Aðlögun í Jörfa

Að byrja í leikskóla markar upphaf skólagöngunnar og er því stór stund í lífi bæði barns og foreldra. Hér færðu upplýsingar um aðlögun í leikskóla.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Miðstöð Jörfa

Leikskólinn Jörfi tilheyrir Norðurmiðstöð. Norðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Laugardal og Háaleiti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Jörfa er: Hulda Guðrún Kristjánsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​