Spennandi starf í búsetukjarna fyrir fatlað fólk
Spennandi starf stuðningsfulltrúa í búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Búsetukjarninn að Sólheimum 21b leitar af starfsmanni til að veita stuðning við fatlað fólk. Í starfinu felst að efla færni notenda til að lifa sjálfstæðu lífi innan og utan heimilis. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og tekur þjónustan mið af því að mæta notendum út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu. Um ræðir mikla líkamlega aðhlynningu Um vaktavinnu er að ræða (morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir aðra hverja helgi). Starfshlutfall samkomulag.
Bæði er leitað eftir starfsmanni í fasta stöðu ásamt sumarstarfsmönnum
- Einstaklingsmiðuð þjónusta
- Líkamleg aðhlynning
- Hvetja og styðja notendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
- Stuðningur og hvatning við athafnir daglegs lífs
- Vinna eftir hugmyndafræði, lögum og reglum í málefnum fatlaðs fólks
- Þekking og reynsla í vinnu með fötluðu fólki æskileg
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurb