Til baka á starfasíðu

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Háteigsskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi skólaárið 2025 - 2026. 

Fullt starf Háteigsskóli 105
Sækja um

Háteigsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig fyrir skólaárið 2025 - 2026. Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 510 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Skólastarfið byggir á teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi. Háteigsskóli leggur ennfremur áherslu á góðan starfsanda og hefur skólinn verið valinn fyrirmyndarstofnun tvö ár í röð. Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.

Um er að ræða 100% stöðu. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Kennaramenntun áskilin.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Teymishugsun

Hlunnindi í starfi

  • Menningarkort og bókasafnskort.
  • Samgöngustyrkur.
  • Sundkort.
  • Heilsuræktarstyrktur. 

Frekari upplýsingar um starfið. 

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Sigfúsdóttir, skólastjóri í tölvupósti gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is eða í síma 411-6870.

Sækja um