Til baka á starfasíðu

Ingunnarskóli - Deildarstjóri stoðþjónustu og yngsta stigs

Ingunnarskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra stoðþjónustu og yngsta stigs í 100% stöðu til afleysinga skólaárið 2025-2026. Um er að ræða 100% stjórnunarstöðu.

Fullt starf Ingunnarskóli 113
Sækja um

Ingunnarskóli er staðsettur við Maríubaug í Grafarholti. Þar eru rúmlega 300 nemendur og 60 starfsmenn við störf. Skólabyggingin er með á stór rými þar sem kennarar vinna í teymum með nemendahópa, áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti/leiðsagnarnám og þemavinnu.

Vinsamlegast hafið samband við Guðlaugu Erlu Gunnarsdóttur skólastjóra, 

gudlaug.erla.gunnarsdottir@reykjavik.is eða Regínu Ómarsdóttur aðstoðarskólastjóra regina.omarsdottirr@reykjavik.is fyrir nánari upplýsingar.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Verkefni og ábyrgð

  • Hefur yfirumsjón með stoðþjónustu skólans 1. – 10 .bekk
  • Skipuleggja sérkennslu og stuðning í samræmi við þarfir nemenda á hverju svæði í samvinnu við kennara og forráðamenn.
  • Skipuleggja stuðningsteymi nemenda og fylgja þeim eftir yfir skólaárið
  • Tengiliður farsælar í samstarfi við námsráðgjafa.
  • Ráðgjöf og stuðningur við foreldra og starfsmenn.
  • Að veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
  • Þátttaka í lausnarteymi skólans og yfirumsjón með nemendaverndarráðsfundum.
  • Hefur umsjón með faglegu starfi í 1.-4. bekk s.s. skólanámskrárvinnu, þróunarstarfi, ásamt aga- og samskiptamálum á stiginu ásamt því að stýra stigsfundum á svæðinu.

Hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og/eða framhaldsmenntun æskileg.
  • Reynsla af kennslu og stjórnun.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
  • Góð íslensku kunnátta.
Sækja um