Til baka á starfasíðu

Píanókennari við Tónlistarskólann á Klébergi

Við óskum eftir tónlistarkennara við tónlistarskólann á Klébergi til að kenna á píanó og söng og mögulega fleiri hljóðfæri.

Hlutastarf Klébergsskóli 116
Sækja um

Tónlistarskólinn á Klébergi er hluti af Klébersskóla en þar sameinast undir eina stjórn leikskóli, grunnskóli, frístundaheimili, félagsmiðstöð og tónlistarskóli. Í Klébergsskóla eru nú um 120 nemendur í 1. til 10. bekk og þar af eru um 40 börn í tónlistarskólanum.

https://reykjavik.is/klebergsskoli

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast tónlistarkennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarstarfi.

Hæfsniskröfur

  • Tónlistarkennaramenntun eða tónlistarmenntun sem nýtist í kennslu.
  • Áhugi á að starfa með börnum og unglingum.
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og í mikilli samvinnu við kennara.
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags (FT eða FÍH).

Umsóknarfrestur til 10. apríl 2025.

Ráðningarform - tímabundin ráðning.

Sveigjanlegt starfshlutfall.

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Sigrún Anna Ólafsdóttir skólastjóri í síma 6648271

sigrun.anna.olafsdottir@reykjavik.is

Sækja um