Skólaritari Víkurskóla
Víkurskóli óskar eftir að ráða ritara í 80% ótímabundið starf á skrifstofu skólans. Starfið er fjölbreytt og krefst vandvirkni. Við leitum að lausnamiðuðum, sveigjanlegum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur ánægju af starfi með unglingum í jákvæðu umhverfi.
Víkurskóli óskar eftir að ráða ritara í 75% ótímabundið starf á skrifstofu skólans. Starfið er fjölbreytt og krefst vandvirkni. Við leitum að lausnamiðuðum, sveigjanlegum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur ánægju af starfi með unglingum í jákvæðu umhverfi.
Víkurskóli er staðsettur í norðanverðum Grafarvogi og er unglingaskóli fyrir 8.-10. bekk.
Skólinn er nýsköpunarskóli þar sem lögð er áhersla á að þróa nýjar lausnir í námi og kennslu, öfluga teymisvinnu og virka og lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu. Í Víkurskóla er meginstefið nýsköpunarhugsun, lausnaleit, tækni- og teymisvinna sem og leiðsagnarnám og uppeldi til ábyrgðar.
Víkurskóli er með regnbogavottun frá Reykjavíkurborg og er þátttakandi í grænum skrefum borgarinnar.
Leitað er að skapandi einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með unglingum, starfa í teymum, taka þátt í hönnun og mótun skóla með skapandi hugsun að leiðarljósi.
Gildi Víkurskóla eru Frumkvæði – Fjölbreytileiki - Fagmennska
Hægt er að kynna sér starf skólans á Facebooksíðu skólans Víkurskóli - nýsköpunarskóli
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Hæfniskröfur
- Þjónustulund, lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
- Góð almenn tölvufærni.
- Reynsla af skrifstofustörfum
- Þekking á skjalavörslu
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun og afgreiðsla.
- Móttaka gagna og tölvupósts
- Almenn skjalavarsla.
- Aðstoð og upplýsingagjöf til nemenda, starfsmanna og forráðamanna.
- Eftirlit með reikningum og samþykkt reikninga
- Umsjón með nemenda og starfsmannaskráningu.
- Almenn tölvuvinna og skráningar.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hlunnindi í starfi
- Menningarkort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Laun skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Nánari upplýsingar veitir Þuríður Óttarsdóttir skólastjóri Víkurskóla thuridur@reykjavik.is eða í síma: 4117800