Deildarstjóri
Árborg er þriggja deilda leikskóli í Árbæ.
Leikskólinn er staðsettur tímabundið í Selárskóla.
Í leikskólanum er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi, málörvun, stærðfræði, hreyfingu, vettvangsferðir, samskipti og sköpun.
Árborg er þriggja deilda leikskóli í Árbæ.
Leikskólinn er staðsettur tímabundið í Seláskóla.
Í leikskólanum er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi, málörvun, stærðfræði, hreyfingu, vettvangsferðir, samskipti og sköpun.
Faglegt starf Árborgar styðst í meginatriðum við kenningar fræðimannanna John Dewey, Lev S. Vygotsky og Howard Gardner. Markmið með uppeldisstarfinu er að efla alhliða þroska barnsins þ.e líkams- og hreyfiþroska, tilfinningaþroska, vitsmunaþroska, félagsþroska, málþroska, sköpunarhæfni og siðgæðisvitund.
Hafir þú áhuga á að vinna með skemmtilegu fólki sem vinnur vel saman í góðum starfsanda, yndislegum börnum í sterku og góðu foreldrasamfélagi þá er Árborg staður fyrir þig.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Einkunnarorð leikskólans eru Traust - Samvinna - Gleði - Nám
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildastjóra, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn leikskólastjóra.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun, eða önnur uppeldismenntun æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli -Stig B2 skv. samevrópsaka tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur
- Hádegismatur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags.
100% starfshlutfall.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Helgadóttir í síma 6647716 eða í gegnum tölvupóst,
kristin.helgadottir@reykjavik.is